Munur á milli breytinga „Bréf (SG02-39)“

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Lína 49: Lína 49:
 
<br />[[Guðbrandur Vigfússon|Guðbrandr Vigfússon]]
 
<br />[[Guðbrandur Vigfússon|Guðbrandr Vigfússon]]
 
''
 
''
----
 
* '''Gæði handrits''':
 
* '''Athugasemdir''':
 
* '''Skönnuð mynd''':[[http://handrit.is Lbs: Handrit.is]]
 
 
----
 
----
 
* '''Skráð af:''': Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
 
* '''Skráð af:''': Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
 
* '''Dagsetning''': 07.2011
 
* '''Dagsetning''': 07.2011
 
----
 
----
* '''(Titill 1)''':
+
 
 
* '''Sjá einnig''':
 
* '''Sjá einnig''':
 
* '''Skýringar''':
 
* '''Skýringar''':
Lína 63: Lína 59:
 
* '''Tilvísanir''':
 
* '''Tilvísanir''':
 
<references />
 
<references />
* '''Hlekkir''':
+
* '''Tenglar''':
  
[[Category:1]] [[Category: Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni (prófessor) í Oxford]] [[Category:All entries]]
+
[[Category:1]] [[Category: Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni til Sigurðar Guðmundssonar]] [[Category:All entries]]

Útgáfa síðunnar 3. september 2015 kl. 08:08

  • Handrit: SG 02:39 Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni (prófessor) í Oxford
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 30. maí 1859
  • Bréfritari: Guðbrandur Vigfússon
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: Konrad van Maurer, Arnljótur Ólafsson?
----
  • Texti:


Kmhöfn 30. Mai 1859. Bls. 1


Góði vin!

Eg skammast mín að eg í vetr ekki hefir skrifað þér til, til
að svara þér uppá þitt góða bréf í haust. Ég veit ekki hvort þú
hefir fengið miða frá mér í haust eða vetr snemma um
leið og eg sendi þér pappírinn. En hvað um gildir þá er
litlu tapað þó það aldrei hafi komið fram. Mig langar til
að vita hve marga Hánefi bjúgnefi söðulnefi þú hefir dregið
upp á dúk eðr pappír í vetr, og hversu margar stíngilnefjur,
hefðir þú skipt í dálka, þá væri efni í nyja hagfræði handa
Arnljóti að ári. Þú ættir nú að vera kominn til Munchen
þar sem Maurer er; eg hefi séð í blöðunum, að mörg hundr-
uð af heldra kvennfólki þar hafi sagt Frökkum stríð á hendr,
á þann hátt, að þær hafa gengið í félag, að hafna öllum frans-
kum móðum. <ref group="sk"> 'A sumarmánuðum 1859 stóð yfir stríð milli Frakka og Austurríkismanna um sjálfstæði Ítalíu og var farið að halla á Austurríki. Hugsanlega kann það að skýra þessa uppákomu í Munchen. </ref> Nú eru allir hugvitsmenn þará ráð-
stefnu, hvern búning þær eigi taka í staðinn. Þar ætti því
að vera kominn einn talsmaðr fyrir húfu og eðr fald ef vel
vildi verða, og væri enginn betr til þess kjörinn en þú. Nú
er eg hræddr um, að fáar verði til að sinna faldinum, nema


Bls. 2


ef vera skyldi kona Maurers<ref group="sk">Valerie von Faulhaber (1833-1912)</ref>.
Eg vonast eptir bréfi frá þér nú með póstskipi, eg skrifa
ekki meira að sinni því mig vantar efnið í það. -
Lifðu allar stundir vel. Þinn einlægi vin
Guðbrandr Vigfússon


  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="sk" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Tenglar: