Bréf (SG02-81)
- Handrit: SG 02:80 Bréf frá Magnúsi Stephensen lækni
- Safn: Þjóðminjasafn
- Dagsetning: 26. ágúst. 1859
- Bréfritari: Magnús Stephensen læknir
- Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda:
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: Jón Eiríksson, Randrup, ? Gunnlaugssen, Guðbrandur Vigfússon?,
Arnljótur ?, frú Eiríksson?, frú Sigurðsson?, Brandur ?
- Texti:
bls. 1
Höfn 26. ágústm. 1859.
Salve multum.
Mikill veraldar-asni og öfugsnáði
getur þú verið, að sjá ekki að það er upp-
hefð fyrir þig að skrifa öðrum eins höfð-
ingja og lærdómsmanni og mjer,
og það miklu optar enn jeg skrifa þjer,
enn þú snýrð þessu um og því
sendi jeg þjer þennan umvöndun-
ar Kapitula. Það gleður mig að heyra
að þjer líður vel og þú hefur nokkuð
gera?*, svo þú þarft ekki að vera fri-
viligeradur?* Dagdriver i Rv, einsog
Jón Eiríksson; aptur á hinn bóginn
þykja mjer hjákátleg Subjekt, sem
þú klýnir upp á pappírinn, og
bls. 2
jeg verð að segja, að svo hjelt jeg þú
hefðir aukinn Sands?* fyrir hinu
fagra að þú mundir ekki ljá þig fyrir
10rd til annarrar eins fúlmennsku og
mála hið mesta kýrkuntu-andlit*(undirstrikað),
sem sólin hefur sjeð, nefnil. Randrups
annars er myndin nógu vel gjörð
held jeg eftir snjáldina/ni á honum.
Myndina af Gunnlaugssen kann
jeg þjer aptur á móti mikla þökk
fyrir. Allir hjer lifa við hið gamla
Guðbr. *þinn*(undirstrikað) er suður í Mineku/Múneku?* og
hlær víst *vestanhlátur*(undirstrikað) þar óspart.
Mjer finnst annars þínir miklu
vinir hann og Arnljótur sjeu farnir
að verða uppvísir að fýlmennsku,
þarsem annar níðist á Konráði og
hefur borið hann á hræribrekkur
við útlenda menn, enn hinn
bls. 3
er að leitast við sem mesta að eyði-
leggja frú Sigurðsson, sem þó hefur
haldið í honum lífinu lengi, það
sannast á honum gleymt er þá
gleypt er, hann hefur ætlað sjer
þetta lengi það veit jeg með vissu.
Hinir lifa við það gamla sem sagt.
Brandur drekkur og slarkar.
Um frjettir varðar þig ekkert.
Jeg er nú ekki lengur að mannskemma
mig á að skrifa þjer, því *hvað*(innsk) skal
svín með silfur á grösunum eða
hundur í helgidómi?
Í Guðsfriði
Magnús Stephensen
- Gæði handrits:
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:Mynd:Example.jpg
- Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
- Dagsetning: XX.07.2011