Bréf (SG02-68)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 30. nóvember 2013 kl. 12:35 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. nóvember 2013 kl. 12:35 eftir Olga (spjall | framlög) (→‎Tenglar)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG:02:68 Bréf frá Jóni Sigurðssyni til Sigurðar Guðmundssonar
  • Safn: Þjóðminjasafn Íslands
  • Dagsetning: 1. nóvember 1861
  • Bréfritari: Jón Sigurðsson
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni: Safn Sigurðar Guðmundssonar Aðfangabók Þjóðminjasafnsins bls. 39: „Bréf frá Jóni Sigurðssyni, forseta, skjalaverði, Kaupmannahöfn. 14.5 x 23.1 cm. Dagsett 1.11.1861. Efni: Jón fjallar um gerð korts & ritgerðar um Alþingisstað hinn forna, sem hann hefur beðið Sigurð að gera. Hyggst Jón láta Bókmenntafélagið gefa hana út & senda ávísun til Bókmenntafélagsins líklega fyrirframgreiðsla til Sigurðar.”
  • Nöfn tilgreind: Pétur Pétursson

  • Texti:

bls.1


Khöfn 1. Novbr. 1861.

Kæri vin,

Ástar þakkir fyrir yðar góða bréf 28. Septbr. og skýringar
um Þíngvalla ferðina. Eg sendi yður nú ávísan uppá Bókmennta
félagið og vona Professorinn<ref>„þ.e. dr. Pétur Pétursson, síðar byskup; hann var forseti Reykjavíkur-deildar Bókmentafélagsins þá. – Af þessu er berýnilegt, að Jón Sigurðsson hefir beðið þá Björn og Sigurð um Þingvallaruppdráttinn fyrir Bókmentafélagið, enda er uppdráttur Björns enn í eigu þess. - Uppdrættir Sigurðar af álnasteininum og blótbollanum eru nú í safni hans til Þingvallarlýsingar, sem var fyrrum meðal skjala og bréfa Hafnardeildar, en nú er í safni Sigurðar í Þjóðminjasafninu. – Bréfið er prentað áður í Minningarriti J. S., bls. 327.” Árbók hins íslenzka fornleifafjelags 1929 bls. 98.</ref> láti honorera hana, því eg vil eingum
unna uppdrátta eða lýsinga á Þíngvelli nema bókmentafélaginu
- Mér líkar vel skoðun yðar í öllu málinu, en miklu meira
sakna eg – okkar á milli að segja – í framkvæmdinni, og
þarf að bæta út því smásaman. Það er rétt sem þér segið, að
allt fjalla á milli þarf að vera í kortinu, og einkum allir vegir
á Þíngvöll. Þarnæst annað kort yfir sögu öldina og þriðja yfir
seinni tíð. Þó spursmál, hvort þessi tvö ekki geta sameinast.
- Eg er og á því, að taka allt sem byggíng eða tópt eða
hleðsla heitir, að því leyti það er eptirtekta vert. – Eg hefi
skrifað Gunnl. um dálítið, sem eg safnaði. –
Mér þætti vænt, ef þér nú gerðuð kort sem þér segið
eptir yðar höfði, og skriflega lýsíng með stöðunum úr
lögunum til skyríngar. Þessi ritgjörð ætti að vera laung
nokkuð og ítarleg, og hugsa eg þér fengið Honorar fyrir hana
og hún kæmi í Safn til sögu Íslands, með korti.
Ekki þykir mér álnarsteinninn svo nákvæmur sem eg
vildi, og einkum vantar lýsíng um hann, en þó enn fremur
bæði uppdrátt og lýsíng á bollasteininum. - Þegar

bls. 2


vel væri gengið frá þíngvöllum, þá væri tíð að fara að Þíng-
skálum og víðar, en þetta er enginn léttaleikur, meðan fé-
lagið hefir ekki fjörugra styrktarlið en nú, því allt gengur
í áhugalausu dundi hjá flestum, og við fáum ekki tillögin.
Þeir hugsa víst, að nöfn sín á pappírnum sé nóg.
Forlátið mér þessar línur, og verið kærlega kvaddur
Yðar einlægur vin
Jón Sigurðsson.


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir: Bréfið var gefið út í sjá: Matthías Þórðarson: „Bréfaviðskifti Jóns Sigurðssonar forseta og Sigurðar Guðmundssonar málara 1861-1847” Árbók hins íslenzka fornleifafjelags 1929, Reykjavík 1929 bls. 34-107, hér bls. 36.
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: Júní 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar