Bréf (SG02-163)
- Handrit: SG 02:163 Bréf frá Sigurði Péturssyni, bónda og hreppstjóra, Ási
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 30. ágúst 1853
- Bréfritari: Sigurður Pétursson
- Staðsetning höfundar: Ási
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda: Kaupmannahöfn
- Lykilorð: þakkir, myndir, föðurarfur
- Efni: „Þakkir fyrir myndir sem Sigurður hefur sent. Vangaveltur um úttektir Sigurðar hjá kaupmönnum. Enn um föðurarfinn sem ekki er að fullu greiddur. Andlátsfregnir.“ Sarpur, 2015
- Nöfn tilgreind: Ingibjörg Guðmundsdóttir, Ólafur?, hr. Guðmann, hr. Thaae, Björn í Eyhildarholti, Jón Espólín, Ólafur Guðmundsson á Grund
Texti:
bls. 1
Ási í Hegranesi þann 30ta Ágúst 1853
Sæll og blessaður frændi!
Eg þakka þér kjærlega 2 síðastfeingin tilskrif! það fyrra
af 29 Sept, enn hið síðara af 17 Apr: þ:a: en sjerílagi þakka eg
þér mindina er fylgdi næstnefndu brefi, og þikir mjer þar vett vel
hafa tekist með hana; Eikjurnar með hinni mindinni færði eg sjálfur
Ýngib: sistir þinni, enn Olafi m afhendti eg glasið og munu bæði þau
á sínum tíma kannast við skil á því; fyrir skemstu fékk móðir þín
bref frá þér, líka Ol:m og Sgr Jón Samsonss: en eg hefi ekkert
síðar feingið enn á hef vikið so ekki get eg neitt giskað á með fjárhagsl
ástand þitt nema hvað ráða mætti af líkindum. Svo skildi eg
biðja þig að skrifa mér greinilega um: hvurnig þú hefir feingið
goldið það eg vísaði þér til í fyrra bæði hjá herra Guðmani og
herra Thaae, því svo vill nú heldur gánga nær fyrir mjer: að
eg hefi enn ekki farið í kaupst í Ási, fyrr enn ef eg kemst það
að morgni, sem ósatt hefi; því hefi eg nú feingið Contrabók
mína áður get vitað hér, hvað til góða hefi, og fretti nú
í dag, að herra Th: sje þaðan sigldur, sem var þar nokkra
daga, nísku að sjá eptir sínu, og vildi eg þó helst hafa skrifað
þér með honum sjálfum og líka senda - ef nokkuð væri. -
Já! mér gleimdist fyrir skemstu, biðja þig lofa mjer að vita:
hvurnig útlát tíðkast á tilvísunum, hvurt þú færð - eður heimtar
þær í peníngum einusini eður optar, ellegar húsráðandi þinn
úttekur hjá kaupmönnum þessum til hússins þarfa?
Ekki get eg enn gjört þér full skil fyri föðurarfi þínum
samt vóru sameiginlega seld í vetur þaug tt er hann átti
af Vindhæli, því sistur þínar munu líka, þurfa sinna muna
við, síðan giptust ogsa verða þarfirnar, enn síðar mun eg
gjöra þér grein fyrir öllu saman. - af mér er ekkert
merkilegt að seigja, lasleiki fremur vagsandi hjá bæði konu
og mjer, líkt og drepið er á fyrri; en brauð og blessan nægileg
enn nú fyrir Guðs náð. - Björn bóndi Ólafsson á Eyhildarholti
(er fyrri bjó á Rípi) drukknaði í fremri kvistinni á Uppstigníngar
dag í vor frá 5-6 börnum, laglegur búmaður og góður maður;
og síðar í sumar andaðist jarðyrkjumaður Jón Espólín og litlu seinna
Olafur Guðmundsson á Grund, og þókti mikill skaði að báðum
því sosum ekkert vóru skútunar vorir búnir að læra af
Jóni sál; enn Ólafur heitinn hafði enn nokkur ár, töluvert
keipt af meðólum á Apótheki siðra, og hjálpað um þau aptur
þá þörf hafði mörgum til heilsubótar; átti líka 3 börn
öll heldur lítið kominn á legg. Vertu nú kjærlega
kvaddur af frænda þínum
S. Pétursson
bls. 2
AUÐ SÍÐA
bls. 3
AUÐ SÍÐA
bls. 4/forsíða
ATH þetta er skrifað lóðrétt, þ.e. eftir langhlið blaðsins
Efst á blaðinu er hins vegar skrifað lárétt:
Sigurðr
og hægra megin á spássíu er einnig skrifað lárétt:
ð ð
Sigurðr Sigurðr
Til
Uppdráttarlistalærisveins Sigurðar Guðmundssonar
í Kaupmannahöfn
Hér í
1 spec
- Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Dagsetning: 07.2011