„Bréf (SG02-42)“: Munur á milli breytinga
mEkkert breytingarágrip |
mEkkert breytingarágrip |
||
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum) | |||
Lína 147: | Lína 147: | ||
Forláttu nú mas þetta. Ég skrifa þetta einsog | Forláttu nú mas þetta. Ég skrifa þetta einsog | ||
sé eg að róa undan rauðkembíngi:<ref group= "sk">Rauðkembingur er illhveli í þjóðsögum sem var gífurlega fljótfara og hættulegt eftir því. Ef sást til rauðkembings var ekkert annað að gera | sé eg að róa undan rauðkembíngi:<ref group= "sk">Rauðkembingur er illhveli í þjóðsögum sem var gífurlega fljótfara og hættulegt eftir því. Ef sást til rauðkembings var ekkert annað að gera en að róa í land með hraði. (Sjá: [https://timarit.is/issue/280461?iabr=on "Þar eru rauðkembingar oft að skeinast." Tíminn - Helgin (28.01.1989)]</ref> | ||
Þinn einlægi vin | Þinn einlægi vin | ||
Lína 169: | Lína 169: | ||
* '''Dagsetning''': 07.2011 | * '''Dagsetning''': 07.2011 | ||
---- | ---- | ||
==Skýringar== | |||
<references group=" | |||
<references group="sk" /> | |||
==Tilvísanir== | |||
<references /> | <references /> | ||
[[Category:Bréf]] [[Category: Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni til Sigurðar Guðmundssonar]] [[Category:All entries]] | [[Category:Bréf]] [[Category: Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni til Sigurðar Guðmundssonar]] [[Category:All entries]] |
Nýjasta útgáfa síðan 3. september 2024 kl. 01:06
- Handrit: SG 02-42 Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni (prófessor) í Oxford
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 1. sept 1860
- Bréfritari: Guðbrandur Vigfússon
- Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda:
- Lykilorð: þakkir, myndir, Kjartanssteinn (rúnasteinn), Borg á Mýrum, Laxdæla, kvæði Hallfreðar, rúnasteinar, rúnalist (Danmerkur, Svíþjóð, Ísland),
- Efni: „Þakkir fyrir myndasendinguna, á myndum fyrir Dasent sbr. SG:02:40-41. Vangaveltur um svonefndan Kjartansstein, sem fundist hefur í kirkjugarðinum að Borg á Mýrum. Sagan segir þetta legstein Kjartans Ólafssonar, þess sem Laxdæla fjallar um. Eftir uppdrætti, sem Sigurður hefur sent Guðbrandi að dæma telur hann af og frá að steinninn geti verið eldri en frá 1500.“ Sarpur, 2015
- Nöfn tilgreind: Sir George Webbe Dasent, Grímur Thomsen?, Eggert og Finnr, Kjartan Ólafsson (Laxdælu), Ólafur Þórðarson hvítaskáld
Texti:
bls. 1
Kmhöfn 1. Sept. 60.
Góði vin!
Ég þakka þér kærlega fyrir sendínguna, hallir
og skála; mér fyrir mína parta líkar það vel,
og þykir vænt að slíkt komist á prent, gæti
það þá aptr vakið rannsóknir frekari um
hvað eina. Ég hefi enn ekki fengið bréf
frá Dasent líkl. af því að hann er í
Skotlandi, en þegar hann kemur þaðan þá
skrifar hann. Grímr sendir þetta, og getr og
verið að það verði nokkra stund á leiðinni.
með næstu postskipsferð skal eg því gjöra
þér betri skil og skrifa þér betr, en þakka þér
alúðlega hvað fljótt og vel þú hefir gjört þetta,
og skynsamlega, því hér var um að gjöra
að fá eitthvað sem sennilegast væri dregið
upp en ekki langar ransóknir, því þær
bls. 2
geta síðar komið.
Ekki er eg samdóma þér allsendis um Kjart-
ansstein. Mér sýnist þú falla (?*) á sama skeri og
Eggert og Finnr. Steinninn sem þú heldr að sé 12 steinn
sýnist mér eptir uppdrætti þínum, að stafagerð
og stafsetníng ekki vera eldri en frá 15. öld og hin-
um ekki eldri. Fyrsta orðið er hier að mér sýnist
en það er 15. aldar stafsetning. Annars held
eg að enginn steinn sem á stendr her (eða
hier) hvílir, sé mjög gamall. - Á Kjart-
ansstein, ristum ár 1003 ætti og að
standa Áleifr eða Oleifr ekki Ólafr, sem
er síðari mynd, sjá kvæði Hallfreðar. Ég er
annars óviss um að nokkur Kjartanssteinn
sé eðr hafi verið í Borgarkirkju garði. Menn
vissu af Laxdælu að Kjartan var grafinn að
Borg, meira þarf sögusögnin ekki til, ef þá sést
gamallegr steinn sem menn ekki geta lesið,
þá kalla menn hann Kjartansstein. Menn
hafa ótal dæmi, hvernig sögusagnir alþýðlegar
bls. 3
myndast af litlum rökum, minni en þetta. Eg
held að enn sé á Íslandi ekki fundnir rúnasteinar
eldri en frá 14.(13?) öld þeir elstu. Rúnir hafa
aldrei verið mjög tíðkaðar á Íslandi, og Olafr hvíta-
skáld lærði rúnalist i Danmörk en í Danmörk
en einkum Svíþjóð er aðalheimkynni rúna-
listarinnar. - Rétt mun það lesið að þú
les Anpar = Anþor sem er afbökun úr
Arnór = Arnþóri og finst í bæjarnafni í
Borgarfirði Oustur?* eða Hindshvel?*. En þetta sýnir
þó að sá steinn getr heldr ekki gamall verið
Forláttu nú mas þetta. Ég skrifa þetta einsog
sé eg að róa undan rauðkembíngi:[sk 1]
Þinn einlægi vin
Guðbrandr
Mikinn fald er í ráðningu Gests á fyrsta
draum Guðrúnar.
- Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Dagsetning: 07.2011
Skýringar
- ↑ Rauðkembingur er illhveli í þjóðsögum sem var gífurlega fljótfara og hættulegt eftir því. Ef sást til rauðkembings var ekkert annað að gera en að róa í land með hraði. (Sjá: "Þar eru rauðkembingar oft að skeinast." Tíminn - Helgin (28.01.1989)