„Bréf (SG02-109)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

(7 millibreytinga eftir 2 notendur ekki sýndar) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
* '''Handrit''': | * '''Handrit''': SG02-109 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási | ||
* '''Safn''': Þjóðminjasafn | * '''Safn''': [http://www.thjodminjasafn.is Þjóðminjasafn Íslands] | ||
* '''Dagsetning''': 11. feb. 1871 | * '''Dagsetning''': 11. feb. [[1871]] | ||
* '''Bréfritari''': [[Ólafur Sigurðarson]] | * '''Bréfritari''': [[Ólafur Sigurðarson]] | ||
* '''Staðsetning höfundar''': [[Ási]] | * '''Staðsetning höfundar''': [[Ási]] | ||
* '''Viðtakandi''': [[Sigurður Guðmundsson]] | * '''Viðtakandi''': [[Sigurður Guðmundsson, málari|Sigurður Guðmundsson]] | ||
* '''Staðsetning viðtakanda''': | * '''Staðsetning viðtakanda''': | ||

* '''Lykilorð''': | * '''Lykilorð''': þjóðmálin, verslunarsamtök, grindverk, tíðindi | ||
* '''Efni''': | * '''Efni''': „Joh þingmennsku Ólafs. Ástand í þjóðmálum. Stofnun verslunarsamtaka. Gerð grindverks. Almenn tíðindi. (Umslag fylgir).“ [http://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=498626 Sarpur, 2015] | ||
* '''Nöfn tilgreind''': Krieger, Ögmundur illi, Pétur Eggerz, Randrup lyfsali, Þórunn Ólafsdóttir | * '''Nöfn tilgreind''': Krieger, Ögmundur illi, Pétur Eggerz, Randrup lyfsali, Þórunn Ólafsdóttir | ||

==Texti:== | |||

bls. 1 | ===bls. 1=== | ||

Ási, 11. febrúar 1871 | |||
[[File:SG02-109_1.jpg|380px|thumb|right|
[http://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=498626 Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.]]] | |||
Ási, 11. febrúar 1871 | |||
Kæri frændi! | |||
Hafðu þökk fyrir bréfið af 29. nóv. f.á. | |||
sem endurnýjaði aptur frændsemi okkar, | |||
er nærri var fallinn í dá, af því fyrst | |||
og fremst, að stjórnin feldi mig frá þing- | |||
mennsku, og síðan sveitungar mínir, svo eg | |||
gat eigi fengið að finna þig þriðja sum- | |||
arið, eins og eg þó hafði ætlað. Þessi | |||
niðurstigning mín úr þingmannstigninni | |||
er samt það tilfelli, sem eg hef ekki tekið | |||
mér mjög nærri, því í sannleika að segja, | |||
er það mjög óskemtileg staða fyrir hvern | |||
þann þingmann, sem ann landi okkar, þar | |||
sem nú má heita, að menn sitji þar til | |||
lítils á þessum verstu og síðustu þing- | |||
um, nema ef það ætti að heita rétt til | |||
að verjast áföllum. Illa lízt mér á | |||
frumvarp Kriegers, „og er svo úttalalað | |||
um hið fyrra" (Ögmund illa) | |||
Þá er nú að minnast ögn á Þórer | |||
þömb; þú segir að við verðum að fara | |||
að spara við okkur óþarfakaupin og reyna | |||
svo til að hafa verzlunarsamtök; þetta | |||
er nú að vísu satt. En hvað hinu fyrra | |||

bls. 2 | ===bls. 2=== | ||

við víkur, þá viðurkenna að sönnu margir, að | |||
[[File:SG02-109_2.jpg|380px|thumb|right|
[http://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=498626 Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.]]] | |||
við víkur, þá viðurkenna að sönnu margir, að | |||
kaffibrúkunin sé langt, gengin fram yfir | |||
hófsins takmörk, og svo fleira þessháttar | |||
sem þú nefnir; en straumur þessa okkar | |||
tíma beljar svo grimmilega á þá, að þeir | |||
standasta ekki, heldur flytjast með honum | |||
ósjálfráðt. Ef þú nú gættir að þessum straum | |||
< | mundir þú fáa sjá, sem grynnra standa en í | ||
mitti, marga undir hendur, og suma í háls; | |||
er þá von að garmarnir standist? Hér | |||
við bætist líka sællífsfýsn og heimtufrekja | |||
vinnufólks, að ógleymdri hinni miklu gest- | |||
reisni okkar Íslendinga, sem loksins ætlar nú | |||
að verða að tálbeitu fyrir flækinga og land- | |||
hlaupara. Mér er því til efs, að hér dugi | |||
nokkur prédikun, og tel óvíst að menn um- | |||
ventast þó einhver framliðinn upprisi. | |||
Um verzlunarsamtök er allt öðru máli að | |||
að gegna, þar sem uppþot í því tillit er þegar | |||
orðið almennt á öllu landinu, og sumstaðar | |||
farið að hafast dálítið upp úr því. Við | |||
Skagfirðingar erum nú í þessum mánuði að | |||
safna vöruloforðum handa lausakaupmanni, | |||
sem Húnvetninga félagið hefur boðist til að | |||
senda á Sauðárkrók að sumri, og eiga loforð | |||
þau að sendast núna með póstskipsferðinni | |||
til kaupstjóra félagsinss Péturs Eggerz frá | |||
Borðeyri. Hvernig þetta fer, veit eg eigi | |||

bls. 3 | ===bls. 3=== | ||

með vissu, en skást lízt mér á að við sam- | |||
[[File:SG02-109_3.jpg|380px|thumb|right|
[http://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=498626 Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.]]] | |||
með vissu, en skást lízt mér á að við sam- | |||
einum okkur Húnvetningum og leggjum aetiur | |||
í félagið, svo það gæti styrkts; einkum þegar | |||
svona stendur á, að allur austurhluti Húna- | |||
vatnssýslu liggur svo vel við Sauðárkrók. | |||
Eg þarf nú að fara að búa til kálgarð hjá | |||
mér hér fyrir framan húsið, því öskuhaugurinn | |||
gamli er alltaf að akast burt. Eg vil hafa | |||
rimagarð, þar sem að húsinu veit að minnsta | |||
kosti, eins og þann sem er hjá Randrup; mér | |||
< | þótti hann svo laglegur. Gjörðu svo vel að | ||
láta mig fá af honum teikning ef þú getur; | |||
eða þá mál af öllu t.a.m. hvað stólparnir eru | |||
háir og hvað í þvermál; hvað langt á milli | |||
þeirra, hvað þá stöðvar að neðan annað en grjót; | |||
hvað langt er frá jörðu upp að neðri slá, og | |||
hvað lángt frá efri enda að efri slá; hvað þær | |||
eru breiðar, þykkar; hvað langt er milli sívölu | |||
rimlanna, hvað þeir eru í þvermál, og hvert | |||
þeir eru eigi jafnháir stólpunum að ofan; | |||
hvað þeim heldur að þeir ganga ekki til, eða | |||
færast niður. Það er líklega það, að gatið í neðri | |||
slána er minna en hitt og þar svo dálitill stallur | |||
á rimlinum. Eg skoðaði þetta allt saman | |||
vandlega einusinn og ætlaði þá að skrifa það hjá mér, | |||
en gleymdi öllusaman. Þeir kunna ekki að | |||
smíða þetta blessaðir snikkararnir hérna, svo | |||

bls. 4 | ===bls. 4=== | ||

eg verð að geta sagt fyrir því sjálfur. | |||
[[File:SG02-109_4.jpg|380px|thumb|right|
[http://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=498626 Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.]]] | |||
eg verð að geta sagt fyrir því sjálfur. | |||
Af mér er sama að segja á flestann hátt | |||
og þegar þú vissir til, og við fundumst. Eg misti | |||
ýnsta drenginn minn í fyrra fyrir jólin, svo | |||
eg á nú ekki nema 4a á lífi. En í sumar | |||
bættist mér aptur stúlkubarn, sem Þórunn | |||
heitir; það er ættarnafn eins og þú veizt. | |||
Kona mín og móðir biðja kærlega að | |||
heilsa þér, og óska þér allra heilla. | |||
Þinn frændi | |||
Ólafur Sigurðsson. | |||

* '''Skráð af''': Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir | |||
* '''Skráð af | |||
* '''Dagsetning''': 07.2011 | * '''Dagsetning''': 07.2011 | ||

==Sjá einnig== | |||
==Skýringar== | |||
<references group=" | <references group="sk" /> | ||
==Tilvísanir== | |||
<references /> | <references /> | ||
==Tenglar== | |||
[[Category: | [[Category:Bréf]] [[Category: Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni til Sigurðar Guðmundssonar]] [[Category:All entries]] |
Nýjasta útgáfa síðan 8. september 2015 kl. 13:49
- Handrit: SG02-109 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 11. feb. 1871
- Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
- Staðsetning höfundar: Ási
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda:
- Lykilorð: þjóðmálin, verslunarsamtök, grindverk, tíðindi
- Efni: „Joh þingmennsku Ólafs. Ástand í þjóðmálum. Stofnun verslunarsamtaka. Gerð grindverks. Almenn tíðindi. (Umslag fylgir).“ Sarpur, 2015
- Nöfn tilgreind: Krieger, Ögmundur illi, Pétur Eggerz, Randrup lyfsali, Þórunn Ólafsdóttir
Texti:
bls. 1
Ási, 11. febrúar 1871
Kæri frændi!
Hafðu þökk fyrir bréfið af 29. nóv. f.á.
sem endurnýjaði aptur frændsemi okkar,
er nærri var fallinn í dá, af því fyrst
og fremst, að stjórnin feldi mig frá þing-
mennsku, og síðan sveitungar mínir, svo eg
gat eigi fengið að finna þig þriðja sum-
arið, eins og eg þó hafði ætlað. Þessi
niðurstigning mín úr þingmannstigninni
er samt það tilfelli, sem eg hef ekki tekið
mér mjög nærri, því í sannleika að segja,
er það mjög óskemtileg staða fyrir hvern
þann þingmann, sem ann landi okkar, þar
sem nú má heita, að menn sitji þar til
lítils á þessum verstu og síðustu þing-
um, nema ef það ætti að heita rétt til
að verjast áföllum. Illa lízt mér á
frumvarp Kriegers, „og er svo úttalalað
um hið fyrra" (Ögmund illa)
Þá er nú að minnast ögn á Þórer
þömb; þú segir að við verðum að fara
að spara við okkur óþarfakaupin og reyna
svo til að hafa verzlunarsamtök; þetta
er nú að vísu satt. En hvað hinu fyrra
bls. 2
við víkur, þá viðurkenna að sönnu margir, að
kaffibrúkunin sé langt, gengin fram yfir
hófsins takmörk, og svo fleira þessháttar
sem þú nefnir; en straumur þessa okkar
tíma beljar svo grimmilega á þá, að þeir
standasta ekki, heldur flytjast með honum
ósjálfráðt. Ef þú nú gættir að þessum straum
mundir þú fáa sjá, sem grynnra standa en í
mitti, marga undir hendur, og suma í háls;
er þá von að garmarnir standist? Hér
við bætist líka sællífsfýsn og heimtufrekja
vinnufólks, að ógleymdri hinni miklu gest-
reisni okkar Íslendinga, sem loksins ætlar nú
að verða að tálbeitu fyrir flækinga og land-
hlaupara. Mér er því til efs, að hér dugi
nokkur prédikun, og tel óvíst að menn um-
ventast þó einhver framliðinn upprisi.
Um verzlunarsamtök er allt öðru máli að
að gegna, þar sem uppþot í því tillit er þegar
orðið almennt á öllu landinu, og sumstaðar
farið að hafast dálítið upp úr því. Við
Skagfirðingar erum nú í þessum mánuði að
safna vöruloforðum handa lausakaupmanni,
sem Húnvetninga félagið hefur boðist til að
senda á Sauðárkrók að sumri, og eiga loforð
þau að sendast núna með póstskipsferðinni
til kaupstjóra félagsinss Péturs Eggerz frá
Borðeyri. Hvernig þetta fer, veit eg eigi
bls. 3
með vissu, en skást lízt mér á að við sam-
einum okkur Húnvetningum og leggjum aetiur
í félagið, svo það gæti styrkts; einkum þegar
svona stendur á, að allur austurhluti Húna-
vatnssýslu liggur svo vel við Sauðárkrók.
Eg þarf nú að fara að búa til kálgarð hjá
mér hér fyrir framan húsið, því öskuhaugurinn
gamli er alltaf að akast burt. Eg vil hafa
rimagarð, þar sem að húsinu veit að minnsta
kosti, eins og þann sem er hjá Randrup; mér
þótti hann svo laglegur. Gjörðu svo vel að
láta mig fá af honum teikning ef þú getur;
eða þá mál af öllu t.a.m. hvað stólparnir eru
háir og hvað í þvermál; hvað langt á milli
þeirra, hvað þá stöðvar að neðan annað en grjót;
hvað langt er frá jörðu upp að neðri slá, og
hvað lángt frá efri enda að efri slá; hvað þær
eru breiðar, þykkar; hvað langt er milli sívölu
rimlanna, hvað þeir eru í þvermál, og hvert
þeir eru eigi jafnháir stólpunum að ofan;
hvað þeim heldur að þeir ganga ekki til, eða
færast niður. Það er líklega það, að gatið í neðri
slána er minna en hitt og þar svo dálitill stallur
á rimlinum. Eg skoðaði þetta allt saman
vandlega einusinn og ætlaði þá að skrifa það hjá mér,
en gleymdi öllusaman. Þeir kunna ekki að
smíða þetta blessaðir snikkararnir hérna, svo
bls. 4
eg verð að geta sagt fyrir því sjálfur.
Af mér er sama að segja á flestann hátt
og þegar þú vissir til, og við fundumst. Eg misti
ýnsta drenginn minn í fyrra fyrir jólin, svo
eg á nú ekki nema 4a á lífi. En í sumar
bættist mér aptur stúlkubarn, sem Þórunn
heitir; það er ættarnafn eins og þú veizt.
Kona mín og móðir biðja kærlega að
heilsa þér, og óska þér allra heilla.
Þinn frændi
Ólafur Sigurðsson.
- Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Dagsetning: 07.2011