„Íslendingabragur“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(Ein millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
==Íslendinga-Bragurinn== | ==Íslendinga-Bragurinn== | ||
'''Íslendinga-Bragur'''<ref>[[Jón Ólafsson]]. [[Baldur (Tímarit)|Baldur]], 3. árg. 4 tbl. 19. mars. 1870, bls. 15<ref | '''Íslendinga-Bragur'''<ref>[[Jón Ólafsson]]. [[Baldur (Tímarit)|Baldur]], 3. árg. 4 tbl. 19. mars. 1870, bls. 15</ref> | ||
''<br/>orktur sumarið 1869, þá er stjórnarbótarmáls-frumvörpin lágu fyrir alþingi.'' | ''<br/>orktur sumarið 1869, þá er stjórnarbótarmáls-frumvörpin lágu fyrir alþingi.'' | ||
''<br/>Lag sem við Massillíu-brag (La Marseillaise).'' | ''<br/>Lag sem við Massillíu-brag (La Marseillaise).'' | ||
Lína 49: | Lína 49: | ||
==Sjá einnig== | ==Sjá einnig== | ||
==Skýringar== | ==Skýringar== | ||
<references group=" | <references group="sk" /> | ||
==Tilvísanir== | ==Tilvísanir== | ||
<references /> | <references /> |
Nýjasta útgáfa síðan 17. júlí 2011 kl. 14:47
Íslendinga-Bragurinn
Íslendinga-Bragur[1]
orktur sumarið 1869, þá er stjórnarbótarmáls-frumvörpin lágu fyrir alþingi.
Lag sem við Massillíu-brag (La Marseillaise).
Vaknið! vakið! verka til kveður
váleg yður nú skelfinga tíð!
Vaknið ódeigum Ýmishug meður:
ánauð búin er frjálsbornum lýð!
Þjóðin hin arma, hamingju horfna
heillum og frelsi vill stela oss frá
og níðingvaldi hyggst oss hrjá,
hyggur okkur til þrælkunar borna.
Án vopna viðnám enn
þó veitum, frjálsir menn!
og ristum Dönum naprast níð,
sem nokkur þekkir tíð.
En þeir fólar, sem frelsi vort svíkja
og flýja í lið með níðingafans,
sem af útlendum upphefð sér sníkja,
eru svívirða og pest föðurlands.
Bölvi þeim ættjörð á deyjanda degi,
daprasta formæling ýli þeim strá,
en brimrót, fossar, fjöllin há
veiti frið stundar-langan þeim eigi.
Frjáls því að Íslands þjóð
hún þekkir heims um slóð
ei djöfullegra dáðlaust þing
en danskan Íslending.
Lúta hljótum vér lægra í haldi,
lýtur gott mál, því ofbeldi er rammt!
En þótt lútum vér lyddanna valdi,
lútum aðeins nauðugir samt!
Frelsisins sjálfir ei flettum oss klæðum,
frjálsir vér samþykkjum aldregi rangt!
Því víst oss hefnt þess verður strangt!
Von um uppreisn oss brenni í æðum!
Það þussa þjóð er geymt,
sem þeygi oss er gleymt!
Því ristum Dönum naprast níð,
sem nokkur þekki tíð.
- Skráð af:: Karl Aspelund
- Dagsetning: 14.07.2011
Sjá einnig
Skýringar
Tilvísanir
- ↑ Jón Ólafsson. Baldur, 3. árg. 4 tbl. 19. mars. 1870, bls. 15