„Bréf (SG02-105)“: Munur á milli breytinga

Úr Sigurdurmalari
Fara í flakkFara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(Ein millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 131: Lína 131:
==Tenglar==
==Tenglar==


[[Category:1]] [[Category: Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni til Sigurðar Guðmundssonar]] [[Category:All entries]]
[[Category:Bréf]] [[Category: Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni til Sigurðar Guðmundssonar]] [[Category:All entries]]

Nýjasta útgáfa síðan 8. september 2015 kl. 20:50


  • Lykilorð: alþingistíðindin, teikning (skarðablöð), þakkir, Þjóðólfur
  • Efni: „Þakkir fyrir sendingu á vír, alþingistíðindum og teikningu.“ 498558 Sarpur, 2015

Texti:

bls. 1

498558 Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.


*ATH. í efra vinstra horn hefur Sigurður Guðmundsson skrifað: Svarað


Ási 12. Octobr 1864

Kæri frændi!

Jeg á nú loksins að færa þér góða kveðju frá konu

minni fyrir uppdrættina með skarðablöðunum, sem

henni líkuðu mikið betur en hinir fyrri, og er

hún nú nýbúin að baldýra eptir þeim fram-

aná treyju, og þarnæst fyrir 2ö lóð af hvítum

vír, sem þú líka sendir henni, segir hún það hinn

bezta vír, er hún hefur fengið; fyrir hann mun

hún hafa sendt þér peninga fyrirfram, hvert sem

þeir hafa nægt, og nú biður hún þig aptur

um 2ö lóð, en borgunina sendi jeg þó ekki núna,

því jeg býzt alltaf við , að jeg þurfi að senda þér

mikla summu á endanum, því með hverri póstferð

væntir hún eptir beltispörunum og jafnvel líka

baldýringu á treyju sem hún var beðin að útvega

hjá þér í fyrra, og þú fremur lofaðir.

Þessunæst þakka jeg þér fyrir gott bréf af

19. April næstl. og svo fyrir sendinguna á 6. árg.

alþingistíðinda í sumar með Grafarósskipinu sem

ekkert bréf fylgdi. En nú vantar mig fyrir 3 ár

1845-1847-1853, og hvað kemur til þess? Jeg skrif-

aði þó Jóni okkar Guðmundssyni strax eptir að aug-

lýsingin kom út í Þjóðólfi, að taka fyrir mig frá

tíðindin handa Rípur hrepp, og líkar mér ílla ef

hann hefur látið þau ganga upp, og mig sitja á

hakanum, ef þú getur ekki lagfært það. Loksins

bið jeg þig að færa mér til reiknings ef þú hefur

borgað afhendingu tíðindanna, því ekki vil jeg níðast

á þér, (máské peningalitlum) þó við séum frændur, að láta

þig borga það sem jeg eða minn hreppur átti að gjöra. -

Þinn frændi

Ó. Sigurðsson


bls. 2

AUÐ SÍÐA


bls. 3

AUÐ SÍÐ


bls 4.

498558 Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.


S. T. No 114

Herra Málari Sigurður Guðmundsson

í/Reykjavík







  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

Tilvísanir

Tenglar