„Bréf (SG02-106)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum) | |||
Lína 17: | Lína 17: | ||
* ATH. Í efra vinstra horn hefur Sigurður skrifað: Svarað öllu | (*)ATH. Í efra vinstra horn hefur Sigurður skrifað: Svarað öllu | ||
Lína 81: | Lína 81: | ||
* '''Dagsetning''': 07.2011 | * '''Dagsetning''': 07.2011 | ||
---- | ---- | ||
==Sjá einnig== | ==Sjá einnig== | ||
==Skýringar== | ==Skýringar== | ||
Lína 88: | Lína 89: | ||
==Tenglar== | ==Tenglar== | ||
[[Category: | [[Category:Bréf]] [[Category: Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni til Sigurðar Guðmundssonar]] [[Category:All entries]] |
Nýjasta útgáfa síðan 8. september 2015 kl. 20:51
- Handrit: SG02-106 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 6. feb. 1865
- Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
- Staðsetning höfundar: Ási
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda:
- Lykilorð: kvenbúningur
- Efni: „ Fyrirspurn um kvenbúninginn - varðandi ákveðin atriði í gerð hans.“ Sarpur, 2015
- Nöfn tilgreind:
Texti:
bls. 1
(*)ATH. Í efra vinstra horn hefur Sigurður skrifað: Svarað öllu
Ási 6. Febrúar 1865
Kæri frændi!
Eg skrifaði þér að sönnu um daginn með Hafna-
mönnum, en það er nú ekki búið með það; nú biðr
kona mín mig enn að skrifa þér, og gjöra til
þín fyrirspurn, líkt eins og við hreppstjórarnir
gjörum til stjórnarinnar, þegar við skiljum ekki
vel lögjin. Þarna ertu þá orðin löggjafi kvenn-
fólksins, en hvenær ætlar þú að fara að hafa gagn
af þessari makt? Já eg átti að gjöra fyrirspurn,
um hvort engin breiting er nú komin í þig, eða þær
þarna í R.vík í tilliti búningsins; þú sendir henni
uppslag í hittið fyrra, það er baldírað mikið
nær annari röðinni á flöjelinu, hvor röðin á að
snúa fram? á flöjelsuppslagið að vera 4 þuml.
á breidd? eiga engar stímur að vera utan með á
því? eða á börmunum á treyjunni? Hvað
langt upp á hún að vera krækt? á hún að vera
ókrækt um brjóstin eins og peisa? Á ekki að
hafa hvítar liningar eða Manchetter fram undan
treyju ermunum? Svaraðu þessu fljótt ef
þú getur, því kona m. þarf að koma upp 4
treyjum fyrir páskana ef vel væri, og þá liggur
henni á stímunum sem eg nefndi í hinu bréf
inu, ef þú getur nokkuð með þær; að endingu
biður hún kærlega að heilsa þér. -
Þinn frændi
Ó. Sigurðsson
- Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Dagsetning: 07.2011