„Fundur 8.jún., 1865“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: 200px|thumb|right| Fundarbók, 1861-66. <br /> Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. * '''Handrit''': [http://handrit.is/is/manuscript/view/is/Lbs04...) |
m (Fundur 8. jun., 1865 færð á Fundur 8.jún., 1865) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 12. janúar 2013 kl. 22:14
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 8. júní 1865
- Ritari: Helgi E. Helgesen
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðstaddir: XXX
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: XXX
Texti
Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0099v)
Ár 1865 fimmtudaginn 8. juni var fundur haldinn í fjelaginu
og gat forseti þess fyrst að Jón Þorkelsson væri búinn að semja
ritgjorðina um Gissur jarl Þorvaldsson og umleið þess að Jón
Þorkelsson hefði hugsað sjer til þess að koma sem fyrst riti
þessu á prent að láta prenta það sem skólaprogram; með
því móti gæti það komið á prent fjelaginu að kostnaðar-
lausu, en færi svo gæti Jón ei átt von á neinu honorari og
stakk því forseti upp á því að fjelag vort í þóknunarskyni
við höfundinn fyrir starfann gæfi honum af sjóð sínum
eina 20rd eða svo, en ákvörðun um það var eigi tekin
sökum þess að fáir fjelagsmenn voru á fundu og leizt
mönnum betra að láta urskurð um þetta bíða til ein-
hvers hinna fyrstu haustfunda.-
Þvínæst bar forseti upp Ingólfsmálið, og las
upp kafla úr brjefi frá fjelaga vorum E Magnussyni
og voru það ráð allraþeirra, er á fundi voru, að fela
fjelaga vorum alþingismanni Sv.Skúlasyni að bera
það upp á þingi í sumar, og reyna að fá þingið og
hina einstöku þingmenn til þess að ganga í málið
og tókst Sv.Skúlason það á hendur.-
Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0100r)
Því næst gat forseti þess að fjarhagur fjelagsins væri
líkur eins og hann var í lok februarmánaðar og sleit
svo fundarhaldi fjelagsins fyrir þetta ár
Fundi slitið
H.E.Helgesen
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Eiríkur
- Dagsetning: XX.XX.2011