„Fundur 12.jún., 1863“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: 200px|thumb|right| Fundarbók, 1861-66. <br /> Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. * '''Handrit''': [http://handrit.is/is/manuscript/view/is/Lbs04...) |
m (Fundur 12. juni, 1863 færð á Fundur 12.jún., 1863) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 10. janúar 2013 kl. 18:25
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 12. júní 1863
- Ritari: Árni Gíslason
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðstaddir: XXX
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: XXX
Texti
Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0052r)
Ár 1863 þann 12 juni var fundur haldinn í félaginu og voru á
fundinum 14 felagsmenn mættir
I forföllum forseta stýrði varaforseti fundinum.
1. Var þá fyrst lesin upp ritgjörð Hannesar skósmiðs Erlendssonar
er hann hafði skrifað um Sigurð Breiðfjörð. Þótti félagsmönnum
ritgjörðin gefa góðar upplýsingar um Breiðfjörð, en ljetu í
ljósi að þeir hefðu óskað hún hefði verið nokkuð lengri.
Nefndin sem á seinasta fundi var kosin til að stýnga uppá hvað
höfundinum skyldi borga fyrir þessa ritgjörð, bar upp að hún
áliti hæfilega borgað 2 rdl fyrir hana og var það samþykkt
í einu hljóði.
2. Gjaldkeri lagði fram reikninga félagsins fyrir þetta félagsár
Atti það þá í skuldabréfum_____ 88 r ?
í peningum_____________________ 1 48 89 rdl 48 ?.
3. Hjelt varaforseti ræðu til félagsmanna; Skýrði frá ástandi
og framförum félagsins tók hann fram að þó að félagið ekki
Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0052v)
hefði eignast margar ritgjörðir á ari þessu þáhefði það auðgast
að svo góðum félagsmönnum sem það gæti hefði sóma af og
gæti vænt mikils af seinna meir. Síðan eptir nokkrar
umræður kvaddi hann félagið og sagði fundum þess slitið
fyrir þetta félags ár
Félagsmenn beiddu varaforseta að bera forseta H E Helgesen
sem nú liggur veikur innilega kveðju sína með heitri ósk
um góðan og fljótan heilsubata.
Fundi slitið
Jón Árnason Á Gíslason
Ar 1863 Sunnudaginn þann
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Eiríkur
- Dagsetning: XX.XX.2011