Bréf (SG02-176)
- Handrit: SG 02:176 Bréf frá Stefáni Einarssyni, stúdent, Reynistað
- Safn: Þjóðminjasafn
- Dagsetning: 20. okt. 1860
- Bréfritari: Stefán Einarsson
- Staðsetning höfundar: Reynistað
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda:
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: Sigurlaug í Ási
- Texti:
bls. 1
Reynistað 20. october 1860
Elskulegi vin!
Núna mun þér líka bréfs-
efnið, því það miðar einmitt
í þá áttina , sem þú ert að
berjast fyrir, það er nefnil.
hér stulkur í firðinum eins
og annarsstaðar samt! sum-
ar af þeim eru laglegar
sumar rétt þokkalegar og
mjög fáar fríðar sýnum,
ein af þessum síðastnefndu,
sem að öðru leyti er greind
líka, *til?* en?**(í kassa) og er það þó sjald
*Verte*(u)
bls. 2
gjæft(sic) að það sé samfara - sá bún-
ing Sigurlaugar í Ási, henni leyst(sic)
mjög vel á hann og beiddi mig
að útvega hjá þér uppdrátt, til
að sauma eptir neðan á fót,
og láta fylgja með fyrirsögn
um það, hvernig skipta eigi
litunum, þetta verður þú að
gjöra blessaður með pósti
til baka, því eg lofaði *þer*(y)
henni því, þú getur huggað
þig við það fyrir fyrirhöfn
þína að ef þessi stulka fær bún-
inginn, þá fara hinar til, því
hún er sú fallegasta hér í
firðinum og bezt að sér.
Engin eru heðan nýmæli
nema giptingar og Væsen
bls. 3
sem þig interessar ekki grand?*.
Fyrirgefðu flytirinn og
lifðu vel
þinn vin
St. Einarsson
bls. 4 / forsíða
*ATH skrifað lóðrétt á miðja síðu
S.T.
Herra málari S. Guðmundsson
Reykjavík
- Gæði handrits:
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:Mynd:Example.jpg
- Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
- Dagsetning: XX.07.2011