Bréf (SG02-59)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 12. september 2015 kl. 22:02 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. september 2015 kl. 22:02 eftir Olga (spjall | framlög) (→‎bls. 4)
Fara í flakkFara í leit

Texti:

bls. 1

Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.

Reykjavík 16. ágúst 1855

Elskulegi Sigurður minn!

Eg þakka yður ástsamlega fyrir

tilskrifið með póstskipi og sendín-

-una; - hún skal koma með þeirri

ferðinni sem eg fæ bezta hér næst

á eptir. - Lítið hefir mér áunn-

-izt fyrir yður, - því við erum

svo fjandi tynnir?* í skildínginn

og ná?* reiku?* andi "til hvers það

sé," og endirinn verður sá

að oss finnst upp á fátt vera fé

kastandi nema það liggi fyrir

í lófa manns, eða menn geti

guflað því ofan í sig eins og

t.d. Brennivín Caffe eða

þesskonar. - Eg get samt

drifið?* upp handa yðr hjá

þíngmönnum samtals 55

en úr Eyjafirði voru fyrir 3

bls. 2

Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.

samtals 58*n*(upp)

Þar frá gengur Depositions

-kaupið 1% - - - - - *" 56*(u)

Eptir 57*n*(upp)-40/

og legg eg hér inní jafnstora

ávísun til herra J.S. og mun

hann greiða, undir eins og

hann er búinn að ná ut ávísun

minni hjá "Jurantu?* kassanum"

Með vinsemd og virðingu yðar

J. Guðmundsson

bls. 3

bls. 4

Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.

Málari og myndasmiður herra Sigurður Guðmundsson

í Kaupmannahöfn'


  • Skráð af: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 11.2013

Sjá einnig

Skýringar

Tilvísanir

Tenglar