Bréf (SG02-82)
- Handrit: SG02-82 Bréf frá Magnúsi Stephensen, lækni, Vestmannaeyjum
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 15. okt. 1859
- Bréfritari: Magnús Stephensen, læknir
- Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda: Reykjavík
- Lykilorð: kvenbúningur, Íslendingar, Kaupmannahöfn
- Efni: „Hugleiðingar um ólíkan starfa þeirra Sigurðar og Manúsar. Kvenbúninginn, Íslendinga í Kaupmannahöfn. Allt í hinum hortugasta tón.“ Sarpur, 2015
- Nöfn tilgreind: Randrup, Frk. Heinsen?, Brandur ?, Benedikt? Gröndal, Bjarni Magnússon, Lárus?, Emanuel Larsen - málari, Edvald ?
Texti:
bls. 1
Collegium domur regiae 15, oktob. 1859
Guten Abend prof?*.
Vitlaus vissi jeg þú varst, enn ekki hjelt jeg þú værir svo and-
skoti vitlaus, að sjá það ekki eða kannast ekki við, því
jeg er viss um þú sjerð það, endaþótt sjónin kunni hafa
deprast nokkuð við að grýnast í annað eins rassgats and-
lit einsog á Randrup, að það er upphefð fyrir þig, sem þó
ekki ert nema prof?*, að skrifa mjer, sem er efni í eins
sprenglærðan doktór, sem kem til að hafa jur vitavel
hefir yfir þjer og öllum þínum kumpánum. það má
þó vera mun betra að renna huganum til mín,
en horfa í fremra endann? á gömlum útriðnum
konum, sem þú hefur verið að mála Carrieatur
af. Jeg fyrir mitt leyti vil heldur grúska í manna-
rærum?*, enda þótt ill lykt sje af þeim, eða binda
um griðnalæri?*, vellandi í lekanda, enn skemmta
bls. 2
fjandanum með annari eins Professum, eða þá
sleika og leggja lærið upp við aðrar eins merar,
einsog Frk. Steinsen, því meira virði jeg almennind-
legt ordinort rassgat enn hana alla.
Það gleður mig annars að þjer skuli líða bærilega,
og að þú fáir nokkru áorkað með íslenska búninginn
ef það er annars áreiðanlegt, jeg hjeld að þessi við-
rinis-búningur fylgdi Reykjavíkur frökenunum í
gröfina. Mjer og öllum hjer líður vel, nema hvað
mig langar að þú værir kominn, þó leiðinlegur sjert,
til þess jeg gæti flogist á við þig. Allir eru hjer við
þetta sama, nema hvað sumir kunna að ræða meira
um mellur og flyðrur og andlit á götunni, svo þeir
varla nefna annað, enn þegar þú varst hjer, mjer
þykir það nú leiðinlegt einsog áður. Brandur er keyrður?*
heim fyrir nokkrum dögum; Gröndal er kominn
aptur, hefur víst verið rekinn sunnan úr Þýska-
landi, hann er nú hjer og hefur víst lítið við að lifa,
hann hefur tekið einn fyllirístúr síðan hann
kom, var hjerumbil í 8 daga, og var viðlíka?*
bls. 3
svínskur og um veturinn. Bjarni Magnús-
son gengur upp í vor, enn enginn í vetur.
Lárus er jafnstífur eða öllu stífari umgengst ekki
aðra en greifa og baróna einsog þú getur getið
nærri.[sk 1] Ef þú vilt koma hingað þá skal jeg setja þjer
þá stólpípu að þarminum. - Eitt prof, sem
þú, sem annað prof, hefur víst þekkt er?* dante ný-
lega, nfl. Imanuel Larsen Maniemaler?*.
Vale nobis?* favere perge.[sk 2]
Magnús Stephensen
- Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir
- Dagsetning: 07.2011