Fundur 24.nóv., 1862
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 24. nóvember 1862
- Ritari: Árni Gíslason
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðstaddir: XXX
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: XXX
Texti:
Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0043r)
Ár 1862, 24. Nóbr var fundur settur og haldinn í félaginu
voru í fundarbyrjun aðeins mættir 11 félagsmenn.
1. Las forseti upp uppkast af brjefi er senda skildi til
hinna bréflegu meðlima með póstferðum í þessum
mánuði og stakk jafnframt uppá að senda skildi
Eggert Briem eptirrit af frumvarpi því sem nefndin
hefir gjört til laga fyrir felagið og var hvorttveggja samþykkt.
2. Las forseti uppkast af brjefi til sjera Markúsar
Gíslasonar hvar í hönum er tilkynnt að fjelagið ekki
geti haft þá ætu að telja hann meðal félaga sinna
sökum lausmælgi hans um það.
A fundinum voru þessir ekki mættir: skólakennari Gísli
Magnusson, Matthías Jochumson, Sigurður Guðmundsson
Jónas Jónasson, Oli P Finsen, Pjetur Guðjohnsen og Páll
Sigurðsson
Fundi slitið.
H.E.Helgesen Á Gíslason
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Eiríkur
- Dagsetning: XX.XX.2011