Fundur 19.okt., 1861
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 19. október 1861
- Ritari: Eiríkur Magnússon
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðstaddir: XXX
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: XXX
Texti:
Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0024r)
Ar 1861, laugardaginn hinn 19. Okt. kl. 8. e.m. var fundur
haldinn í félaginu, voru allir á fundi nema L.A. Knudsen, sem
tjáði sig skriflega fjærverandi; var hann álitinn 1 vs
sekur, og sömuleiðis O. Finsen, sem ekki hafði gætt lag-
anna í að afsaka sig eptir ákvörðuninni í §6. 2v
Voru fyrst lesin upp 4 kvæði.
1. Þýðing af kvæði eptir Bjerregaard, sem heitir
"Frihedens Hjem", eptir Skrifara.
2. Þýðing á kvæði Oehlenschlæger "Naar Mørket
slukker Aftenröden" [sk 1]
Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0024v)
3. Þýðing á kvæði Runebergs er heitir Barndoms-
minnen, bæði eptir vara gjaldkera.
4. Frumkveðið kvæði út af ræðu postula
Páls í Athenuborg eptir Matthías Jochum-
son
5. Var lesin upp útdráttur af og byrjun af
ferðasögu yfir Island sumarið 1861 eptir
sama höfund
Rit þessi voru færð inn á ritgjörðalista
félagsins, merkt № 13-16.
6. Voru rædd spursmál á seðlum;
7. Var rædd uppástúnga O. Finsens um að verða
skriflegur meðlimur felagsins hér í bænum
og var hún feld með 16 atkvæðum að með
reiknuðu atkvæði uppástúngu manns
sjálfs.
Síðan var eptir ýmsar umræður,
Bls. 3 (Lbs 486_4to, 0025r)
sem forseti ákvað að ekki skyldi bókast,
Fundi slitið
H.E.Helgesen E. Magnússon
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Eiríkur
- Dagsetning: 01.2013
Sjá einnig
Skýringar
- ↑ [http://www.adl.dk/adl_pub/vaerker/cv/e_vaerk/e_vaerk.xsql?ff_id=58&id=11424&hist=fmN&nnoc=adl_pub Naar Mørket slukker Aftenröden af Ludlams Hule] Ludlams Hule er ópera eftir C.E.F. Weyse. Adam Oehlenschläger var hennar librettunnar. Hún var frumsýnd í Kaupmannahöfn 30. jan. 1816.