Bréf (SG02-110)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:09 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:09 eftir Olga (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG 02:110 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 24. júní 1871 * '''Bréfritari''': [[Ólafur Sigurðar...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakkFara í leit
  • Handrit: SG 02:110 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 24. júní 1871
  • Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
  • Staðsetning höfundar: Ási
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

  • Texti:

bls. 1
Ási, 24. júní 1871.
Kæri frændi minn!
Eg þakka þér fyrir tilskrifið á
döngunum. - Nú má eg ekki vera að
skrifa þér neitt, enda er mesta
erindið að senda þér boðsbréfið með
4 áskrifenda nöfnum úr Rípurhrepp,
fleiri vildu ekki slá til. Hér er
nú komin grasvöxtur í besta lagi,
nóg skyr og smér hjá hverjum manni,
því búið er að færa frá allstaðar.
Ullarprís lítur út fyrir að verði góð-
ur hér nyrðra, yfir 40sk. en matvara
verður sjálfsagt nokkuð dýr. Ekki
er neitt skip komið enn þá á Sauðár
krók.
frændi þinn
Ólafur Sigurðsson.



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:
  • Tilvísanir:
  • Hlekkir: