Þjóðsögur: Vísur
Úr Sigurdurmalari
- Höfundur: Jón Árnason
- Birtíst í: Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri, I. bindi.
- Staður, Ár: Leipzig, 1862.
- Rafræn útgáfa: Baekur.is; Wikiheimild
- Safn: Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
- Efni: huldufólk, búningur
Texti
bls. 129
Að síðustu set ég hér fáein ljóðmæli sem lýsa betur en allt annað sem ég hef séð búningi huldufólks. Eru fyrstu vísurnar þrjár skrifaðar upp vestur á Skarðsströnd 1858 af Sigurði málara Guðmundssyni.
1.
Skónála-Bjarni í selinu svaf;
segja vil ég þér nokkuð þar af:
Kom til hans álfkona fögur og fríð,
sá hann enga vænni um sína lífstíð.
2.
Á bláu var pilsi, en beltið var vænt
bundið um ennið silkiband grænt,
skautafald háan, hvítan sem ull,
á hendinni bar hún þríbrotið gull.
3.
Fæturnir voru rauðir sem rós,
rétt voru lærin fögur sem ljós,
hofmannastaðurinn hærður svo vel
sem hnakki á sólþurrum kópsel.
- Skráð af: o.
- Dagsetning: 10.2015