Skjöl (Lbs489,4to 251r)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 27. nóvember 2024 kl. 18:36 eftir Bjartur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. nóvember 2024 kl. 18:36 eftir Bjartur (spjall | framlög) (Bjó til síðu með „* '''Handrit''': 489 4to * '''Safn''': [http://landsbokasafn.is Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn] * '''Dagsetning''': 28. nóvember 1866 * '''Ritari''': Sigurður Guðmundsson, Jón Árnason, Páll Melsteð ---- * '''Efni''': '''Álit skrifara á uppástungum Eggerts Brím varðandi forngripasafnið. Þeir eru sammála honum en leggja áherslu á að vekja áhuga almennings á safninu með því að skrifa greinar í blöð og senda bréf...“)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakkFara í leit

  • Efni: Álit skrifara á uppástungum Eggerts Brím varðandi forngripasafnið. Þeir eru sammála honum en leggja áherslu á að vekja áhuga almennings á safninu með því að skrifa greinar í blöð og senda bréf á eiginn kostnað.

Texti

5

Vér, sem hér ritum nöfn vor undir, höfum

átt fund með oss og rannsakað og rætt uppá-

stúngur Eggert Ólafssonar Bríms "um forngripa

safnið í Reykjavík", og verður álit vort á þessa leið:

Það er sannfæring allra vor, að félagi voru

sæmi, að veita forngripasafni þessu alt athygli,

og gjöra það sem í þess valdi stendur til að

efla vöxt þess og viðgáng.

En forngripasafnið getur því aðeins staðist

og tekið nokkrum vexti og viðgángi, að at-

hygli og áhugi þjóðar vorrar sé vakinn á þessu

málefni, sem er sannkallað þjóðmálefni. Hér

er því alt undir því komið, að félag vort geti

fundið hin líklegustu úrræði til þess að vekja

þennan áhuga hjá landsmönnum. Að félag vort

fari beinlínis að rita stjórninni og skora á

hana um fjárstyrk handa forngripasafninu

getum vér eigi fallist á, en hitt er annað mál,

að einstakir menn eða fleiri á meðal vor vildu

vekja máls á því í prívat-bréfum til heldri

manna út um landið, og ef svo sýndist,eggja

þá á, að bænaskrá þess efnis kæmi fram

á alþingi því er í hönd fer.

Hvað getur þá félag vort gjört til þess að styðja

að framförum forngripasafnsins? Vér skulum


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
  • Dagsetning: 2024

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:
  • Tilvísanir:
  • Hlekkir: