Verkefni (Lbs489,4to 27r)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 22. maí 2025 kl. 22:17 eftir Bjartur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. maí 2025 kl. 22:17 eftir Bjartur (spjall | framlög) (Bjó til síðu með „* '''Handrit''': 489 4to * '''Safn''': [http://landsbokasafn.is Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn] * '''Dagsetning''': Engin * '''Ritari''': ---- * '''Efni''': '''Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)''' ---- * '''Lykilorð''': umræðuefni, spurningar, þjóðmenning * '''Efni''': Óformlegur listi eða drög yfir 58 tillögur að umræðuefnum og spurningum, með nöfnum þeirra sem lögðu þær til. Fornöld, þjóðbúningar, trúarbrögð, tungumá...“)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakkFara í leit

  • Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)

Texti

1. Snorri goði. Hvaða þátt á hann í sögu Íslands og stjórnarskipan þess?

2. Hverjir voru mestir níðingar í fornöld á Norðurlöndum?

3. Hver voru varkvendi hin forna? verstu að fornum sið?

4. Um mansmenn í fornöld, uppruna þeirra, hag og endaligt? Sv.Sk.

5. Um biskupa Íslands, tign þeirra, ríki og álit að fornu og nýju?

6. Eptir hverju eiga skáld vor að fara í efnisvali og búningi?

7. Hver áhrif hefir breytilegt loptslag og landslag hjer á landi á lundarlag

manna, skynbragð og háttsemi? Gísli M.

8. Hvernig má taka hentug yrkisefni til sorgarleiks eður sorgarleika

úr Njálu. M.Jochumsen

9. Hvað veldur því, að sjerstaklegir þjóðbúningar myndast hjá hinum

ýmsu þjóðum? Sigurðr Guðm.

11. Hvað er myrkfælni? Af hverju kemur hún?

12. Hvað hefir Reykjavík sjer til ágætis fram yfir sveitalífið? Árni Gíslas.

13. Hverjar nýjar hugmyndir vakna hjá námsmönnum þegar þeir flytj-

ast frá einu námskeiði til annars og sjerílagi þegar þeir

fara frá lærða skólanum á prestaskólanum? J.Hjaltalín

14. Er það satt sem Leneca segir, að það sje gott fyrir ungan mann að hafa

þekkt það sem illt er? Gunnar Gunnarsson

15. Hverjir eru helztir ókostir við húsbyggingar Íslendinga Sigurðr Guðm.

16. Hver vegna er lausung skaðleg og þó svo almenn, og hvernig má

úr henni bæta? Þorkell Bjarnason

17. Hverjir eru kostir og ókostir Verzlunarhags vors, eins og hann er nú?

18. Stutt yfirlit yfir helztu bragarhætti í íslenzkum kveðskap frá fyrsta tíman-

um, þangað til nú, hvenær menn foru að yrkja rímur og í hverju

nútímabragarhættir eru frábrugðnir hinum eldri og um

hvert leyti menn fara að yrkja íslenzk kvæði með latneskum

bragarhætti.- Gísli Jón Þorkelsson

19. Hverjir eru kostir og ókostir við lausakaupmanna verzlun?

20. Hver er munur á skyri í fornöld og skyri nú á dögum og með

á því í ýmsum fjórðungum landsins? Sigurður Guðmundsson

21. Það er gefið að Eyrarbakki heyrir til Flóanum. En hjer er beðið sönn-

unar fyrir því að nafnið Flóafífl sje ekki annað en hót-

fyndni.

22. Voru Íslendingar lengra á leið komnir í mennig fyrir lok 14. aldar

en þeir hafa síðar komizt? Jón Þorkelsson

23. Hvað mælir með því að hafa (Lærða? Presta?) skólann í Reykjavík? Gísli Magnússon


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir: JÞM: Nöfn við spurningar stemma ekki við upphafstafi við sömu spurningar í fyrri fundargerðum- úthlutun frummælanda en ekki uppástungur?
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
  • Dagsetning: 2024

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:
  • Tilvísanir:
  • Hlekkir: