Verkefni (Lbs489,4to 40r)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 22. maí 2025 kl. 22:51 eftir Bjartur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. maí 2025 kl. 22:51 eftir Bjartur (spjall | framlög) (Bjó til síðu með „* '''Handrit''': 489 4to * '''Safn''': [http://landsbokasafn.is Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn] * '''Dagsetning''': 12. maí? Ekkert ártal. * '''Ritari''': ---- * '''Efni''': '''Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)''' ---- * '''Lykilorð''': ritgerð, kappræður, latínuskólinn * '''Efni''': "Er þörf á að laga latínuskólann?" Ritari svarar því játandi og rökstyður það. * '''Nöfn tilgreind''': ==Texti== File:Lbs_489_4to-37-0040...“)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakkFara í leit

  • Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)

  • Lykilorð: ritgerð, kappræður, latínuskólinn
  • Efni: "Er þörf á að laga latínuskólann?" Ritari svarar því játandi og rökstyður það.
  • Nöfn tilgreind:

Texti

L.Ad fol. 12.maí

Er þörf á að laga Latínuskólann?

Já. Af hverju? Af því að hann fer á mis við [ólæsilegt]

un sína, og árangur hans samsvarar eigi tilgangi

hans. Tilgangur hans er sá, að afla piltum lærd

menntunar, glæða skynsemina, laga og styrkja

viljan, og efla hjá þeim siðprýði og góða siði (sjá

Skólareglugjörð 14. octs. 1852); árangurinn er sá,

að hann aflar piltum lítillar og einstrengslegra

menntunar, glæðir [ólæsilegt] skynsemina , aflagar og veikir viljann, og eflir

að minnsta mjög lítið siðprýði og góða siði,

(sjá allan þorra þeirra, sem úr skólanum komi)

því að þótt margir þeirra sjeu í mörgu allgóðir

drengir, og efnilegir menn, þá er það ekki skólan

um að þakka, heldur þeirra eigin atgjörfi, og

og annari menntun, en þeir hafa fengið þar.

Í skólanum nema þeir að vísu ýmsan fróðleik,

en margt af honum kemur þeim að engum

notum, hvorki fyr nje síðar, og í annan stað

eiga þeir eigi kost á mörgum þeim fróðleik.

sem þeim [ólæsilegt] að verða til sannarlegra nota,

ef þeir ættu kost á að nema hann og næmu hann

rjettilega. Fyrirkomulag skólans er harð[ólæsilegt]

legt, og ósamboðið íslenzkum menntaskóla á

ofanverðri 19. öld, og spornar að nokkru leyti við

því, að hann nái sannarlegum tilgangi sínum,

en þó að það væri miklum mun vitlausara,

þá gæti skólinn þó orðið landi og lýð til heilla,

ef kennararnir neyttu þess valds og frelsis , sem þeir

hafa, til að haga kennslunni svo sem betur sam-

svaraði kröfum tímans og þörfum þjóðarinn-

ar. þeir eru bundnir við hvað þeir eiga að kenna

og þó eigi meir en svo, að ef þeir mundu æsktu

breytingar á því, þá og sú breyting [ólæsilegt] til

bóta, þá mundi stjórn in og þing, sem eigi

eru ófrjálslynd í þeim efnum, líklega taka

tillögur þeirra til greina. En þeir eru alls eigi

bundnir í tilliti til þess hvernig þeir kenna,

meðan þeir gjöra það stór glop[ólæsilegt]

[á rönd bréfs]vilja, en skiluðu aptur [ólæsilegt], sem þú [ólæsilegt][ólæsilegt][ólæsilegt] fyrir mjer.


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
  • Dagsetning: 2024

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:
  • Tilvísanir:
  • Hlekkir: