Verkefni (Lbs489,4to 40v)
- Handrit: 489 4to
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 12. maí? Ekkert ártal.
- Ritari:
- Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)
- Lykilorð: ritgerð, kappræður, latínuskólinn
- Efni: "Er þörf á að laga latínuskólann?" Ritari svarar því játandi og rökstyður það.
- Nöfn tilgreind:
Texti

og gætu þeir því að miklu leyti ráðið góðri kennslu
aðferð ráðið bót á hinu óhentuga fyrirkomulagi.
Flestir þeirra sýna góðan vilja, alúð og atorku
í embætti sínu, og það er hörmulegt, að svo góðir
og gáfaðir menn, sem flestir þeirra eru, skuli slíta
sjer þannig út, landinu til lítilla nota, og sjálfum
sjer til mæðu, í stað þess að geta orðið eins nýtir menn
eins
og þeir vildu; þeim hlýtur að falla slíkt illa, að
sjá svo lítinn arð iðju sinnar, og lítin ákvöxt fyrir
landið, því að þó að þeir ímyndi sjer þetta allt
betri en er, sem náttúrulegt, af því flestir venjaðra?
fyrir þeim upp í eyrun?, þó þeir bölvi þeim og þeirra
starfi á bak, - þá getur þeim valda dulizt, að hjer
sje missmiði á, og vissulega vilja þeir bæta úr þeim
ef þeir gætu, en þeir virðast eigi geta það, og því þá, í
af því þeir eru að nokkru leyti blindir í sjálfs síns
vök, og þykir sinn fugl of fagur til þess að sjá veru-
leg missmíði á honum. Þeir virðast algjörlega mis-
skilja tilgang skólans, og álíta að eigi fremur
að læra fyrir skólann, en fyrir lífið, að þeir eigi
að læra lærdómsgreinanna vegna, en eigi vegna þess, sem af
henni leiðir, þeir taka meðalið fyrir tilganginn, og
þá er eigi von að vel fari, og það því fremur, sem
það hefur jafnvel mátt ráða af orðum sumra
þeirra, að skólinn væri þeirra sjálfra vegna,
en þeir eigi skólans vegna. Hvað skólastjornina
og skólaaganum snertir, þá er hann býsna misjafn; smá-
glöpp sumra eru goldin með rentum og renturentum, en
sumra ekki, en stór syndir og svínarí verða átölulaus
optast nær. Samkomulag pilta og kennara er mjög bágt
að minnsta kosti undir niðri
þ
og ofan á líka, því opt
á tíðum eru skammir og áflog daglegt brauð, en skjall
og kjass er ekki brúkað nema til stáss við hátíðleg tækifæri.
Kennararnir koma eigi fram við pilta með hógværð og
[ólæsilegt][ólæsilegt] heldur með [ólæsilegt] og krakasvip,
og ala með því óþokka pilta á sjer. Jeg veit að piltar eru
mjög sekir í ólagi skólans, en jeg ætla það kennur-
unum, að laga þá, en leiðast eigi af þeim; og því kenni
jeg þeim sem mest um, að hinn dýrmæti námstími, sem og ágætu
skólapiltar? spillast og verða að því nær engu, og ef
[á rönd á spássíu]piltar hefðu sjálfir góða [ólæsilegt] þá gætu þeir sagt við kennarana þegar þeir kveðja þá: jeg þakka þjer fyrir góðan]
- Gæði handrits:
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
- Dagsetning: 2024
- Sjá einnig:
- Skýringar:
- Tilvísanir:
- Hlekkir: