Fundur 2.mar., 1861

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 31. desember 2012 kl. 20:25 eftir Karl (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. desember 2012 kl. 20:25 eftir Karl (spjall | framlög) (→‎Texti:)
Fara í flakkFara í leit
Fundarbók, 1861-66.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

Texti:


Lbs 486_4to, 0014v Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.


Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0014v)

Ár 1861, laugardaginn hinn 2. marz var fundur

haldinn í félaginu; var hann settur af varaforseta, þar

forseti ekki var kominn til fundar kl. 8,10'. Allir

á fundir nema Þ. Egilsson, Forseti var álitinn marks

múlktar [sk 1] sekur við félagið og Óli Finsen líka þar þeir

komu 1 mínútu eptir að fundur var settur af vara-

forseta. Þ. Egilsson hafði ekki afsakað sig og var á-

litinn 2vs múlktar sekur.

1. Gjörði gjaldkeri grein fyrir fjárhag félagsins til þessa

dags og stóð hann svo, að félagið átti í sjóði 18

Var bókin undirskrifuð af forseta og gjaldkera.

2. Var rætt um producta comica [sk 2] og hvernig menn




Lbs 486_4to, 0015r Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.

Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0015r)


gætu komið þeim fyrir á grímuleik, og voru í því skyni

valdir menn til að taka að sér vissar partes. [sk 3]

3. Var ákveðið að láta ekki fyrst um sinn koma

út í almenning vísur þær og útleggingar sem

því félaginu bærust, sér í lagi yfir Eventyr paa

Fodreisen. [sk 4]

Fundi slitið.

H.E.Helgesen E. Magnússon



  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Eiríkur
  • Dagsetning: XX.XX.2011

Sjá einnig

Skýringar

  1. Múlkt: Fjársekt
  2. Gamanleikrit
  3. "Partes"= Rannsóknarefni. (Nemendur við Kaupmannahafnarháskóla höfðu "hvern dag partes [deildir] í ýmsum vísindum til undirbúnings, sumum undir examen philosophicum og philologicum [heimspekis og málfræðispróf], sumum undir attestats [embættispróf]" Sjá: "Ævisaga Sveins læknis Pálssonar" Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn.(10.árg.1929) Bls. 14) Sjá einnnig: Fundargerð 23. feb. 1861 þar sem sagt er frá kosningu nefndar til að koma upp gamanleikriti á grímuleik.
  4. Eventyr paa Fodreisen (1847) leikrit með söngvum eftir Jens Christian Hostrup (1818-1892).

Tilvísanir

Tenglar