Fundur 1.mar., 1862
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 1. mars 1862
- Ritari: Eiríkur Magnússon
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðstaddir: XXX
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: XXX
Texti:
Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0033r)
Ar 1862, laugardaginn hinn 1. marts, var fundur haldinn
í félaginu. Voru allir á fundi, nema E. Jonsson og B. Tómasson
sem báðir voru álitnir sektarfríir 1 v. sektar sekir þar þeir höfðu afsakað sig skriflega, og Sigurður Guð-
mundsson, sem ekki hafði tilkynnt forföll sín, og var því
álitinn tveggja marka sekur. M. Gíslason var álitinn sektarfrí, sökum veikinda
Mattías Jochumsson var og sökum ókunna skrifl. afsokunar, kringumstæða álitinn frí við sekt.
1. Lagði Gjaldkeri fram skýrslu um fjárhag félagsins í febrúar
1862, og og átti það þá í sjóði 10 53 ? 81.
2. Færði A. Gíslason felaginu frumsamið kvæði, er hann hafði kallað Lopt-
sjón, og færði forseti og aðrir félagsmenn honum þakkir fyrir
það.
3. Spurði forseti félagið hvort það hefði hugsað nokkuð um
uppastúngu E. Magnussonar frá 8. febr. þ.á að sækja um ferðastyrk
handa Sigurði Málara; en því málefni var eptir nokkrar
umræður frestað, sökum þess að einn félagsmanna
hreifði því, að einhverjir í bænum mundi hafa hugsað
um mál þetta og máski gjört eitthvað viðvíkjandi málinu.
Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0033v)
4. Gat varaforseti þess að einn af seðlum þeim, er í félaginu
hafa verið gefnir, hafi fundist í vissu húsi í bænum
og þareð það gæti verið miður æskilegt að þess-
konar seðlar flyttust út úr félaginu, kvaðst
hann vekja máls á þessu.
5. Var þá í einu hljóði samþykkt að afhenda for-
seta seðla þessa jafnóðum og þeir eru ræddir.
Síðan var fundi slitið.
H.E.Helgesen E. Magnússon
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Eiríkur
- Dagsetning: XX.XX.2011