Fundur 22.mar., 1862
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 22. mars 1862
- Ritari: Eyjólfur Jónsson
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðstaddir: XXX
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: XXX
Texti:
Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0034v)
Ár 1862 laugardaginn 22 marts var fundur haldinn
í félaginu. Sökum ljósleysis gat fundur ekki orðið
haldinn á samastað og áður. Gjaldkeri bauð því
felaginu að nota hús sitt; og tók félagið því boði
Forseti hafði falið herra cand. M. Gíslasyni að gegna
störfum sínum; því varaforseti hafði tilkynt forseta
að hann ekki gæti komið. Auk þessara höfðu
afsakað sig Isl. Gíslason, E. Magnússon (munnl. á fundi)
og Mattías Jochumsson og Ó. Finsen. Varaforseti, og Ó. Finsen
voru álitnir sektarfríir, og sömul. J. Jónassen Hinir
voru álitnir 16 sk. sekir. S. Guðmundsson og J. Jonas-
sen og P. Sigurssn afsökuðu sig ekki, en voru þó ekki vegna fund-
ar tímans staðar álitnir aðeins 16 sk. sekir. Skrifarastörfum
gegndi E. Jónsson í forföllum hinna.
Síðan voru rædd yms vísindaleg efni mest
Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0035r)
um "ekkert". Þótti felögum það góð skemmtun.
Þá var fundi slitið
M Gislason E Jónsson (cst.)
?st
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Eiríkur
- Dagsetning: XX.XX.2011