Fundur 8.maí, 1863
- Handrit: Fundarbók Kvöldfélagsins 1861-1866
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 8. maí 1863
- Ritari: Árni Gíslason
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðstaddir: 11 félagsmenn
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: Jón Hjaltalín
Texti
Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0050r)
Ár 1863, 8 maí var fundur haldinn í kvöldfélaginu
og voru 11 félagsmenn á fundinum.
Forseti gat þess að fundur ekki hefði ekki orðið
haldinn í f.m. vegna ýmsra orsaka.
Nefnd sú er kosin hafði verið til stýnga upp á verð-
launaspurningar fyrir næsta ár Stakk lýsti því yfir
að hún hefði fallist á að verðlaunaspurníngar þær
er lagðar voru fyrir félagið í fyrra væri og fyrir
þetta ár, þar eð eingri þeirra enn er svarað. En
nefndin lagði jafnframt fram nokkrar bending-
ar til ritgjörðaefna í hina sögulegu stefnu
er heyrt gætu undir hina vísindalegur ritgjörð
Ritgjörða efni þau er nefndin hafði stúngið
uppá voru þessu.
1. Verzlun á Islandi frá byggingu Islands
til þess það kom undir Noregskonung
2. Hvaða útlend mál lærðu íslendingar í
fornöld og hvar og af hverjum.
3. Hverjar latínska hofunda þekktu og notuðu
íslendingar í fornöld; kunnu þeir Hebresku
og Grísku.
4. Saga Ingólfs og Reykjavíkur.
5. Æfisögur helztu manna Isl á söguöldinni
til 1400
Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0050v)
6. Lýsing á gufuskipum járnbrautum og Telegraph
stutt ágrip af sögu þeirra.
7. Um mans menn á Islandi í fornöld.
Félagið fjellst á skoðun nefndarinnar, og var
enfremur samþykkt, að ef félaginu bærist fleyri
ritgjörðir en í eina í vísindalegu stefnu en er
verðlauna þættu verðar, en engin í skáldlegu
eð dramatiska stefnu, neina aðra stefnu þá tvær eða þrjár væru þær sæmdar
verðlaunum af slíkum ritgjörðum allt að þremur.
Forseti spurði þvínæst nefnd þá hvað
sem kosin hafði verið til að hugsa um
minnisvarða Ingólfs hvað henni væri ágengt
en hún kvaðst af ýmsum ástæðum hafa frestað
að koma máli þessu í meiri gang að svo komnu
að minnsta kosti ekki fyrir næsta alþing. en
kvaðst mundi reyna undirbúa malefni þetta
sem sjer væri unnt
Jón Hjaltalín stakk uppa að bjóða stud Gunn-
ari Gunnarssyni í félagið og var það samþykkt í
einu hljóði.
Anýað var og að safna sögnum til æfisögu
Sigurðar Breiðfjörð og hjetu nokkrir menn góðu um
safna ymsu um það efni innan skamms; og var
Bls. 3 (Lbs 486_4to, 0051r)
skólakennara G. Magnússyni og J. Hjaltalín falið
að fá skósmið Hannes Erlendsson í Reykjavík
til að skrifa upp allt sem hann vissi um kunningja sinn Sigurð
Breiðfjörð móti 2-4 rdl endurgjalds frá félag-
inu.
Mattias Jochumsson stakk upp á að félagsmenn bæru fram
á fundinum ráð til að bjarga þjóðinni í harðærum ef einhver
findi hjá sjer köllun til þess og urðu um það nokkr-
ar umræður
Fundi slitið
H.E.Helgesen Á Gíslason
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Eiríkur
- Dagsetning: 01.2013