1 bréf (EMtilSG 70-04-06)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: B/2 1870/4. (70-04-06) Bréf Eiríks Magnússonar til Sigurðar Guðmundssonar
  • Safn: Bréfasafn Þjóðminjasafns Íslands
  • Dagsetning: 4. júní 1870
  • Bréfritari: Eiríkur Magnússon bókavörður í Cambridge
  • Staðsetning höfundar: London
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson fyrir hönd Forngripasafnsins
  • Staðsetning viðtakanda: Reykjavík

  • Lykilorð: Forngripasafn,
  • Efni: Eiríkur sendir skinnhandrit að gjöf til safnsins frá Engall dóttir Ebenezer Henderson. Eiríkur skrifar einnig þakkarbréf sem hann mælist til að Sigurður skrifi upp eftir sinni forskrift og sendi Engall með undirskrift beggja forstöðumanna safnsins, Jóns Árnasonar og Sigurðar. Það virðist vera sem Sigurður hafi orðið við þessari ósk enda hefur hann skrifað svarað fyrir framan forskriftina.
  • Nöfn tilgreind: Thulia Susanna Engall, Ebenezer Henderson

London. 4. júní 1870

  • Texti:

bls. 1


[Með hendi Sigurðar stendur í efra vinstra horni:]
22/6 svarað og þakkað

6 Portens Road
Maida Hill West. W.
London. 4. júní 1870

Góði vin,

Eg sendi þér með þessarri ferð
skjal frá mss Engall, dóttur Ebenezer’s
Henderson’s sáluga, er við eigum svo
mikið gott upp að inna, er honum hafði
fénast á Islandi, og eg hefi fengið dóttr hans,
til að gefa ykkar forngripasafni, norðr þar.
Það væri ágætt ef þið vilduð skrifa henni
fyrir hönd safnsins eitt hvað á þessa leið:
Dear Madame,
22/6 skrifað We beg thankfully to acknowledge
the receipt, through our countrymen Mr E.
Magnússon, of the Icelandic chaster, which
you have been kind enough tobegueath to
our infant museum of Icelandic antiquities.
We are all the more gratiful toyou, Dear Madame,
for this kindness as the chaster itself as one
of considerable interest and much valued

bls. 2


on account fils ausciation on one
sids[?] with the great prelate whore[?] name
it bears, and on the other with the great benefactor
of Iceland Dr Henderson by whose name it will goin
our Museum Catalogue.
We remain, Dear Madame,
Your obedient servants.
og nofn ykkar beggja undir.
Eg má ekki vera aðpara neitt
aðgagni í þetta sinn því eger eins
[o]gvant er aptan við tímann.
Volsunga er komin út í stáss
útgafu og mælist vel fyrir
þinn einl
Eiríkr Magnusson


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: Júlí 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar


http://is.wikipedia.org/wiki/Eir%C3%ADkur_Magn%C3%BAsson
http://en.wikipedia.org/wiki/Ebenezer_Henderson

  • Handrit: B/3. 1874/1. (74-05-09) Bréf Cristiansson amtmans og fleiri
  • Safn: Bréfasafn Þjóðminjasafns Íslands
  • Dagsetning: 5. september 1874
  • Bréfritari: ókunnur
  • Staðsetning höfundar:
  • Viðtakandi: ókunnur
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð: Forngripasafn
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind:

Það gjörir hvern góðan að geyma vel sitt

  • Texti:

bls. 1


Það gjörir hvern góðan að geyma vel sitt.
Svo sem kunnugt er, höfum vjer Íslendingar,
að dæmum annara þjóða fyrirnokkrum árum tekið að
safna saman á einn stað ýmsum þeim gripum frá
liðinni tíð, er ber með sjer margs konar fróðleik, að því er snertir
sögu landsins fyrr og síðar framundir vora daga.
Á meðan því fór fram öld afeptir öld, að engir í
skeyttu í landinu sjálfu skeyttu um að halda slíkum
gripum til haga, hefir sem nærri má geta, ógrynni af þeim
misfarizt og orðið að engu, enda hefur og miklu verið fargað
til annara landa; en að tölu vert sje þó enn eptir má
ráða af því að allmikill fjöldi gripa hefur þegar
dregizt saman til forngripa safnsins í Reykjavík á
eigi fleiri árum, en liðin eru frá því, er það var stofnað.
En nú er svo ástatt, að ekki ertil neitt víst húsnæði,
þar sem geyma megi í fornmenjar þær, er saman
eru komnar, og meðan svo er, má við því búast,
að þær verði á sífeldum hrakningi, og þá undir eins hætt
við, að fyrir hið sama kunni þeim jafnóðum að verða

bls. 2


spillt og glatað.
Oss, sem hjer ritum undir nafn vor, hefur því komið ásamt að
reyna, ef unnt væri, að ráða bót á þessu með því að skora fyrst og
fremst á landa vora og þar næst á hinar nánustu frændþjóðir
vorar að skjóta fje saman, til þess að af þvímegi verða byggt hæfi-
legt hús handa forngripasafninu í Reykjavík.
Vjer Íslendingar erum sögu þjóð, og ættu því munir þeir, er
næst hinum gömlu sögum vorum geta lýst mennttun og kunn-
og kunnáttu, heimilis lífi, aðbúnaði og öllum háttum þjóðar-
vorrar á undan farinnitíð, að vera oss of kær og dýrmæt eign
til þess, að vjer þolum aðgjörðalaust að sjá fram á það, að
þeir hrekist og verði að ónýtu, enda megum vjer og víst vita að
svo sem„ það gjörir hvern góðan að geyma vel sitt„ og svo
og liggur og við því sæmt sjálfra vor, að vjer gætum veltil
þessar ar þjóðeignar vorrar. Arið, sem nú er að líða yfir
oss, þúsund ára afmæli hinnar íslenzku þjóðar það er
ogí sögu landsvors slíkt hátíðlegt merkisár, er hvetur oss
sjálfkrara til að minnast hins liðna tíma. En hvernig
skyldum vjer geta minnzt hans tilheyrilega með öðru-

bls. 3


enn því, að halda rækilega saman þeim menjum, sem hann
hefur oss eptir látið, og koma þeim fyrir í sem beztri geymslu?
Af þessum ástæðum þykjumst vjer vissir um það,
og vjer berum hjer upp þarflega áskorun á hæfileg-
um tíma, og vonum þess líka með engum efa, að hún
fái goðar hvervetna góðar undir tektir hjá góðum mönnum:
Í ofan verðum ágúst mánuði 1874.
Cristiansson. B. Steincke. Björn Halldórsson.
amtmaður. verzlunarstjóri. prófastur.

Einar Ásmundsson. Tryggvi Gunnarsson.
bóndi. kaupsjtóri.

Akureyri 1874. B. M. Stept 5.


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: Ágúst 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar

Þjóðminjasafn