1 bréf (JStilSG-63-10-06)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: B/1 1863, 3 Bréf Jóns Sigurðssonar til Sigurðar Guðmundssonar
  • Safn: Bréfasafn Þjóðminjasafns Íslands
  • Dagsetning: 10. júní 1863
  • Bréfritari: Jón Sigurðsson
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda: Reykjavík

  • Lykilorð: Forngripasafn, Þingvellir
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind:

Khöfn 10. Juní 1863

  • Texti:

bls. 1


[Í hægra horni skrifað með rithönd Sigurðar]
Svarað

Khöfn 10. Juní 1863

Háttvirti vin,
Það er ágætt, sem þér skrifið mér í yðar síðasta bréfi,
að þér vilið safna öllu um alþíng, sem þér finnið, bæði
munnmælum, skriflegu og myndum; einúngis hafi þér
gát á, að þeir ljúgi engu sjálfir, sem segja frá, því
þeim hættir við að ginna á þesskonar okkur sögufíflin.
Ekki hefi eg séð aðrar katastasis en þessa venjulegu,
mér þætti því mjög vænt um ef fleiri fyndist að fá
þær, annaðhvort í afskrift eða einhverveginn, og
hvaðan þær sé teknar úr handritum. Eg fellst á,
að rétt sé að prenta þetta í heilu lagi. Ekki hefi
eg séð hér neitt kort yfir Þíngvöll, né neina lýsing,
aðra en kastastasis, og uppdrátt af álnarsteininum
eða réttara mál hans eptir Teilmann kammerjunker
á dönsku. Það er í alla staði ómissandi, að safna
hverju maður finnur, en ætíð gá að um leið sögumanninum.
Hafi þér ekki fundið neitt meira um leiki og viki-
vaka, og hvernig þeir voru, með formálum og ýmsu.
Mig lángar til að segja frá því sem eg veit í formála
fyrir “Fornkvæðum” okkar Grundtvigs, en eg veit

bls. 2


svo árans lítið, og þyrfti miklu meira. Ef þér hafið
nokkuð þá hjálpið mér um afskriptir eða uppskriptir
af því, að tilgreindum sögumönnum eða handritum, og
sendið mér reikning með hvernig borga skuli.
Ætli ekki verði nú neitt úr forngripasafni heima
hjá ykkur Þó safn Helga sé ekki stórt, þá er viljann
að virða. Það væri víst hægt að fá héðan mikið af
þesskonar, og það ætti maður að fá, til þess að nokkur
heild yrði í safninu. Frá Museinu hér gæti maður
fengið allskonar, sem ekki væri mjög sjaldgæft,
sumt má móta eptir, sumt má kaupa, ef maður
hefir fé. Eg treysti mér til að fá mikið keypt, ef
eg hefði fé til. Hvað segi þér um það, eða geti
þér ekki hreyft því við þá þar heima og sett þá í
gang með það?
Frolátið mér nú þessar fáu línur og minnist í vinsemd þess sem er jafnan
Yðar einlægur vin
Jón Sigurðsson


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: 6. 2013

Sjá einnig

Matthías Þórðarson: „Bréfaviðskifti Jóns Sigurðssonar forseta og Sigurðar Guðmundssonar málara 1861-1874, með athuasemdur og skýringum”, Árbók hins íslenzka fornleifafjelags 1929, Reykjavík 1929, bls. 34-107. Hér bls. 43.

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar