1 bréf (JStilSG 69-09-03)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 1. ágúst 2013 kl. 16:19 eftir Edda (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. ágúst 2013 kl. 16:19 eftir Edda (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': B/2 1869, 3 Bréf Jóns Sigurðssonar til Sigurðar Guðmundssonar * '''Safn''': Bréfasafn Þjóðminjasafns Íslands * '''Dagsetning''': 9. mars 1869 * '''Bréfritari...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: B/2 1869, 3 Bréf Jóns Sigurðssonar til Sigurðar Guðmundssonar
  • Safn: Bréfasafn Þjóðminjasafns Íslands
  • Dagsetning: 9. mars 1869
  • Bréfritari: Jón Sigurðsson
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda: Reykjavík

  • Lykilorð: Forngripasafn
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind:

Khöfn 9. Marts 1869

  • Texti:

bls. 1

Khöfn 9. Marts 1869 Elskulegi góði vin, Lítið gengur áfram, en þó ofboð lítið meira áfram en apturá bak með safnið. Hérna kem eg með ávísun uppá 30 rd., sem eg hefi afhent Jóni Guðmundssyni og hann mun borga yður í Reykjavík. Það stendur svo á því, að í haust kom eg til Stepehns prófessors. Hann fékk mér þá til forngripasafnsins 5 rd., og sama kvöld kom til hans A. W, Franks, umsjónar maður við Brithish Museum og fékk mér 25 rd. til safnsins líka. Hjaltalín landlæknir hafði skrifað honum og sagt honum frá safni þessu. Eg gaf honum tvö exemplör af skýrsl- unni, sem hann bað um. Mér þætti vænt um, ef þjer vildið segja Hjaltalín frá, þegar þér hafið fengið sendínguna, og að þakka Franks yðar og safnsins vegna. Stephens gætið þér skrifað sjálfur ef yður sýndist. Annars get eg eða ein- hver skilað því. Það er verst, að við höfum enga talsmenn útum heiminn, því ef það væri, þá mundi margt nást meira en nú. – Eg reyndi að setja klausu í skýrslu Bókmfél. til konungs um safnið, og sendi Trap Cabinetssekretera af- skrift af skýrslunni. Nú tala eg við hann einhver daginn,

bls. 2

og fái eg nokkurt færi, skal eg nota það, hvað sem gildir. Worsaae mun ekki koma með neitt ennþá? – Eg hefi þó mörg loforð hans og þeirra. Eg vona líka það uppfyllist smásaman, en eg held yður væri líka óhætt að pota dálítið í hann með góðu bréfi og liðlegu. Í sumar vona eg við getum talazt betur við um þetta og ýmislegt annað, en eg kveð yður þangað til. Yðar einlægur vin Jón Sigurðsson.


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: júlí 2013

Sjá einnig

Matthías Þórðarson: „Bréfaviðskifti Jóns Sigurðssonar forseta og Sigurðar Guðmundssonar málara 1861-1874, með athugasemdum og skýringum”, Árbók hins íslenzka fornleifafjelags 1929, Reykjavík 1929, bls. 34-107. Hér bls. 66-67.

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar