Bréf (SG02-220)

Úr Sigurdurmalari
(Endurbeint frá Bréf (SG-02-220))
Fara í flakkFara í leit

  • Lykilorð: Íslendingar, embættismannastétt, Forngripasafnið
  • Efni: “Álit bréfsritara á Íslendingum, embættismannastéttinni, peningadýrkuninni o.s.frv. Forngripasafnið og vandamál þess. Óskor um að Ísland megi sökkva enn dýpra svo það fái upp risið o.fl.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Heródes, Søren Kierkegaard ("Kirkjugarður,") Pílatus, (Carl Emil) Wessel, Hamlett

Texti

bls. 1

Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.

Reykjavík 24 November 1863


Góði vin!


Eg þakka firir bréf þitt, eg finn

á þér að þér finst landslísíng mín

nokkuð hörð og það er satt að eg kærði

mig ekki um að skéra utan af henni, enn

því miður er hún alt of sönn sem von er

því Reykjavík er á því versta stigi sem gétur

verið, enn hún er höfuðið enn eptir höfðinu

dansa limirnir þó þeir ástundum þikist ekki

géra það og svo er um island - aldrei

held eg að men géti séð af sögunni að Íslendingar hafi

verið á eins miklu kæru leisis og trúar

leisisstigi eins og nú þeir eru nær því

orðnir eins og Danir áður en Kirkjugarður

reis upp á aptur fótonum [sk 1] , þeim fer ákaf-

lega fram í því svo eg þekki þá varla

frá því eg var barn. þegar svo er komið

þá skulum við ekki spurja að pöplinum.

aldrei held eg heldur að veraldlega

stjórn inn landsins hafi eins geingið a tré

fótum og nú, því áður hafa men gétað

feingið practiserað að þjófar irðu híddir

enn nú gétur það ekki orðið fram geingt nema

það gángi frá Heródes til Pílatusar og um það

sé kjaptað í mörg ár


bls. 2

Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.

embættismennirnir hugsa eingaungu um

að fá sína penínga og að þeir verði ekki

settir af en um föður landið hugsa þeir

víst fáir að minsta kosti hæðast þeir

flestir að þeim sem nefna föðurland og

kalla það lopt kastala patriótismi

sem ekki verði látinn í askana þettað

klingir nú meðal nærri allra enn þó mest

ef til vill í skólonum þú veist sjálfur

að þettað er alveg gagn stædt bessastaða

andanum, nú hugsar einginn um annað

en penínga en þó kann eingin meir enn

áður að útvega sér peninga -

það gæti mikið orðið úr forngripa safninu

ef peningar feingjust til þess því mikið er til

enn eingann veginn lítið, ef það væri komið

í eitt irði það stórt safn og merkilegt

firir sögu landsins, en men verða vel að

gá að því að fleira er merkilegt en gull

og silfur og er það þá til í landinu firir

nokkur þúsund dali ef eg skil rétt, og það

merkilegt, þarnæst verða menn að gjæta

að því að í þjóðsafni meiga men ekki

eingaungu binda sig við fornöldina því

eins verða menn að þekkja sögu miðaldanna

og seinni aldanna, í vetur ætla eg

að hleipa því mali alveg til skipsbrots.


bls. 3

Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.


vænt þætti mér að fá að vita ef

það væri hægt hverninn Wessel

líður, því mér þikir mjög ilt að

heira hafi dónonum við Academiið

tekist að géra hann vitlausann því það

var góður dreingur, og þess vegu varla

þeirra meðfæri enn hvað dugar

að tala um það, digðinn verður að

betla kj krjúpandi um náð hjá löstunum

segir í Hamlett so var það á 16. öld og svo

er það nú og svo mun það ætíð hafa

verið - látum okkar land sökkva

sokkva sem dípst í skítin, því það

þarf það að géra áður enn því er uppreisnar

von, því almenningurinn þarf áþreifan-

lega að sjá að mikið sé að, ef hann á að

vilja betra sig og eg vona að það sé farið

að líða að þeim tíma. því svona gétur

það ekki staðið leingi.[sk 2]


vertu sæll þinn


Sigurður Guðmundsson


bls. 4

Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.



  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

  1. Søren Kierkegaard (1813-1855) gagnrýndi harkalega, á arúnum sem Sigurður var í Kaupmannahöfn, það sem honum fannst vera máttlaus og hræsnisfull trúariðkun meðal Dana og Dönsku ríkiskirkjuna almennt.
  2. Hamlet 3.4: Hamlet reynir að sannfæra móður sína að það sé nauðsynlegt að opinbera andstyggðina alla...: HAMLET ... Mother, for love of grace, Lay not that mattering unction to your soul, That not your trespass, but my madness speaks: It will but skin and film the ulcerous place, Whilst rank corruption, mining all within, Infects unseen. Confess yourself to heaven; Repent what's past; avoid what is to come; And do not spread the compost on the weeds, To make them ranker. Forgive me this my virtue; For in the fatness of these pursy times Virtue itself of vice must pardon beg, Yea, curb and woo for leave to do him good.

Tilvísanir

Tenglar