Bréf (SG02-218)

Úr Sigurdurmalari
Fara í flakkFara í leit

  • Lykilorð: Íslendingar, söngmennt, dans, skáldskapur,menning, málarar, leikhús, miðaldir, Hafnarstúdentar, Kaupmannahöfn
  • Efni: „Álit bréfritara á Íslendingum og móttökurnar sem hann hefur fengið. Söngmennt Íslendinga og dans. Menning Íslendinga á miðöldum. Fordómar Hafnarstúdenta gagnvart íslenskum almenningi. Leikhæfileikar Íslendinga“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Jón Árnason, Jón biskup helgi, Halmar?, Gunnar?

Texti

bls. 1

Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.

Reykjavík 8da Mai 1861


heill og sæll!


Eg þakka þér firir bréfið og sendínguna

sem mér líkaði all vel, en mórauði pappírin

var samt heldur dökkur, en allt hitt gott

Af mér hefi eg litið að segja í þettað sinn

mér líður samt allvel, hvorki eg sjálfur eða

aðrir þurfa að kippa sér upp við þótt seigt og fast

gángi firir mér, þar sem eg er einn míns liðs,

og fáir vilja eður géta skilið mig fir en

eptir lángvarandi baráttu, því eg er

framsögumaður í þeim málum sem aldrei

hafa verið borin upp fir, og þessvegna ó

þekt hjá almenníng, eg verð samt að segja að

mitt álit á íslendingum er það, að þeir séu

framar öllum vonum móttækilegir firir

fögrum mentum, þeir fallast á skinsamlegar

á stæður ef stillilega er farið að þeim, og

eru þá ekki mikið of vanafastir, eg vil aðeins

sanna mál mitt með því hvað vel þeir

sóttu kómedíuna, og eins með því hvað

hindran litið kvennbúníngurinn hefir

rutt sér til rúms og siðar hér altaf til rúms,

af því margra fegurðar tilfinning segir

þeim að hann sé fegri enn hinn, sem

þeir þó halda að sé forn, saungur er alltaf

að aukast hér og breiðast út, þó hann fari

helgt sem von er, af því men vóru búnir

firir laungu að tapa öllum hljóðfærum


bls. 2

Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.


sem nóg var af i forn öld og á mið

öldunum, t.d. hörpur, gygjur simfón og lutt

en leingst hofðu þeir eptir, þau vestu sem eru

lángspil og fiðla, saungur og dans var hér

almennur á mið öldunum og alt fram á 16

öld sem sá mikli fjöldi af nótum vottar, sem

til hefir verið, Laurentins saga sinir og að

margir hörpu spilarar hafa verið hér um

1300 en Jón Arason er sá síðasti er eg veit

að att hefir hörpu lútt og simfón, þegar

viki vakarnir vóru firir boðnir og dansin,

þá var eðlilegt að allur saungur eyðilegð-

ist um leið, því til hvers áttu men þá að

brúka hljóð færin er ekki mátti dansa eptir þeim,

og eingin leikhús voru til, því eingin þjóð

hefir en verið svo músikölsk að hún hafi

keipt sér hljóðfæri einúngis til kirkjusöngs,

við sjáum því að það er mest heimska og

ofbeldi ifirvaldanna sem hefir mest

eyðilagt söngin, og margt annað sem leiðir

af því, Skáldskapurin spillist þegar

saungurinn spillist, því þá fara bragar hættirnir

í gönur, og tapa sinni einfeldni, og verður þá

ekki annað enn rím glamur helbert, og

kenninga benda, til þess að það skélt betur

í tönnunum, (first saungin vantar) er ætíð

verður að filgja með skáldskapnum, enda

sjá men að forfeður vorir höfðu tilfining

firir söngnum, á meðann þeir höfðu tilfinn

ing firir réttum skáldskap, Jón biskup helga

er talið til gildis að hann var góður hörpu spil

ari og söngmaður, enda lét hann kénna


bls. 3

Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.


söng á hólum ef eg man rétt. Halmari þákti

sárt að hverfa frá fögrum fljóðasungvi,

Gunnar sló hörpuna svo vel að raptarnir

í húsinu stukku í sundur, og innileg undur

heldu fornmen að þeir gætu gért með saungnum,

og það sinir að þeir hafa þekt saungin betur enn þeir

sem hér hafa á seinni öldum hnoðað saman rímna

leirburð, mér sínist samt alt benda á að tilfinníng

manna hér sé nokkuð farinn að lagast firir skáld

skapnum hjá því sem áður var, þó það gángi

seint eins og annað, Málarar og þess konar men

vóru hér margir til á miðöldunum að minsta kosti

að nafninu til, en þess konar er óhugsandi að

þróist, á meðan skáldskapurinn er alment

i spiltu ástandi, (hugsunarlaus rímborníngur)

og tilfinníngarlaus, því hugsunin er sú sama

hvort sem skáldið sinir hana sem skáld, málari,

eður saungmaður því þegar men skoða það alment,

er það altsaman hángandi keðja, eður 3 greinar á

sömu rót sem hafa eina og sama lífs vökva,

eg á lít því að það séu óhöpp tilviljanir og

illar kríngumstæður sem gerir að við Íslendíngar

erum orðnir smekklausir bæði útvotis og innvortis

en að náttúrunni held eg við seum það ekki,

enda hefir all jafnan vantað men til að brína það

firir almenning, að þeir gæti þess fagra, en nóa

hafa men haft til að brína firir þeim að firirlíta

sjálfa sig, og alt þjóðlegt,

Eg sé að þú heldur að eg hæli Íslendingum of mikið,

þettað kannað vera en það mun samt ekki skakka

miklu, aptur á hinbóginn verð eg að biðja ukkur

sem eruð í Höfn að géra ekki of lítið úr þeim

þið megið vara ykkur á því, því innanum hafnar

flaumin hafið þið mist sjónar á mörgu góðu sem eri

kafanum á Íslandi. og enn sem komið er munu


bls. 4

Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.


munu men verða að sækja þángað máttar riðuna[sk 1] undir

flest sem géra á í Norrænum anda ef það á að verða

fullkomið. þó að lángt sé síðan að eg heirði

redd Hannesar rímuna, þá trúi eg varla

að sá sem gat gért hana, géti ekki látið

pessónar i drama tala með viti en vel trúi eg

að þú hafir ekki tíma eða kringumstæður til þess

og að þú sert orðin heldur ókunnugur landsháttum,

til þess, en þá gétur safn Jóns Arnasonar ráðið

nokkuð bót á því, þegar það kémur út, en víst

er það að stór nauðsin er á þesskonar ritum bæði

bæði til að géfa skáldskapnum fullkomnari

stefnu og eins til, að spana men til að æfa sig til

i að leika, því til þess hafa Íslendingar stærri

hæfilgleika en margir af ukkur sem eruð i

höfn halda, þú manst að eg til forna hældi

ekki hlutunum meira en þeir áttu skilið,

enda þikir mér það mikil sonnun að þeir sem

aldrei hafa séð leikið leika hér ef til

vill allra best. mer verða og að altungu það

að hvorki leikrit eða tableau eru gerð firir

hálf danska skrilin í Vík heldur firir þá

betri Íslendinga, sem margir unnu þeirri

skemmtun, og sækja það jafn vel meira enn

efnin leifa, en þott hinir horfi á það skaðar

ekki.

eg bið nú að heilsa konu þinni og svarta

rakkanum, og öllum heilögum,

lifðu svo vel og heill!


þinn


Sigurður Guðmundsson


  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

  1. Sennilega: "máttar viðuna" (Sbr. Lárus Sigurbjörnsson 1954, bls. 39)

Tilvísanir

Tenglar