Bréf (SG02-100)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð:
  • Efni: „Sigurður hefur enn ekki keypt þær vörur sem hann var beðinn um árið áður. Fjárkláðinn er í algleymingi og finnst Ólafi sem illa sé á málum haldið.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Jón Krukk<ref group="sk">um Jón Krukk í Sagnagrunni</ref>

Texti:

Bls. 1


Ási 15. Maii 1862

Kæri frændi!

Hafðu þökk fyrir tilskrifið núna

með póstinum, þó konunni þækti

ekki mikið fylgja því, en þú seg-

ist nú munir bæta það allt með

næstu póstferð, og þá er allt gott

ef þú getur það.

Ef þú ættir nú ekki mjög an-

ríkt í vor, vildi jeg þú gætir drepið

eitthvað af kláðafénu þarna í

sýslunni kringum þig; aldrei geta

þeir læknað hann, og sannarlega er

það harðt, að við Norðlendingar

skulum altaf mega bera þenna

varðkostnað ár eptir ár, fyrir vit-

leisu og skeitingarleisi nokkurra

manna, og kannské loksins mega

neiðast til að fara með her á

höndur þeim, eins og spámaðurinn

Jón Krukk segir; því nú má þó

ekki uppgefast; jeg vona þú berir

aldrei sverð móti löndum þínum.

Þinn frændi

Ó. Sigurðsson


bls. 2

AUÐ SÍÐ


bls. 3

AUÐ SÍÐA


bls. 4

S.T.

Herra Málari Sigurðr Guðmundsson

í/Reykjavík





  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar