Bréf (SG02-101)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:05 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:05 eftir Olga (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG 02:101 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 3. jan. 1863 * '''Bréfritari''': [[Ólafur Sigurðarson...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:101 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 3. jan. 1863
  • Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
  • Staðsetning höfundar: Ási
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:


  • Texti:

bls. 1
Ási 3. Janúar 1863
Kæri frændi!
Bréf þitt af 25. Júnii f.á. þakka jeg að
nokkru, altjend fyrir uppslagið og koffrið sem
því fylgdi, en jeg get ekki þakkað þér fyrir
pörin, sem þú ætlar aldrei að komast út-
af; máské þú getir það núna fyrir páskana.
Blygðunarlausa sölu hefur þessi smiður þeim,
þú mátt til að rífast við hann, að selja koffrið
sem vegur rúmt 1 lóð á 6*rdl*(upp)3*p?*(upp) þó það sé
gullroðið, í gamla daga var vani að selja
výravirki sem kallað var helmingi meira en það
vóg, en þar er munur á, þarsem þetta má stimpla
út og stimpillinn einstaklega auðgjörður. -
Hjálpaðu mér núna dálítið ef jeg þarf;
svo stendur á, að jeg átti eins og aðrir að
fá öll alþingistíðindin til hreppsins hérna, og
skrifaði jeg Jóni Guðmundssyni um það í tíma,
síðan bað jeg Jónas í Arnarholti að ná þeim
út fyrir mig (Jónas sem var í Keflavík) en
þegar hann reindi það tvisvar, svaraði Jón
ekki góðu, hann þóktist ekki hafa tíð til
að segja „gumoren", sé nú Jónas ekki um
búinn að ná þeim út, sem vel getur verið,
þá gjörðu það fyrir mig, og geimdu þau


bls. 2
þangað til jeg læt ná þeim. Tvö fyrstu
heftin af síðustu tíðundunum hef jeg feng-
ið, og það er allt og sumt. Jeg vona
jeg fái frá þér línu það fyrsta þú getur
hvort sem henni fylgir nokkuð eða ekki
neitt.
Líði þér alténd sem best
óskar
Ó. Sigurðsson



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: