Bréf (SG02-102)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: alþingstíðindin, ferðir, greiðsla
  • Efni: „.Nú gefst ferð suður, til að sækja pörin sem S.átti að láta smíða. Önnur ferð gefst, fyrir alþingstíðindin sem hann átti að útvega. Ólafur biður Sigurð að útvega sér og fylgir greiðsla með.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Sigurður snarfari, Sigurður Stefánsson

Texti:

bls. 1

Ási 23. Febr. 1863

Kæri frændi!

Eg skrifaði þér að sönnu á dögunum

með Þorláki, en nú fer kunningi minn

Sigurður snarfari suður, og bið jeg hann

að taka hjá þér pörin, ef þau eru nú

til, hann mun ekki setja upp borgun fyrir

það, og lætur þú þá fylgja reikning

yfir allt saman. Jeg var að biðja þig

að ná út fyrir mig alþingistíðindunum

svo þau voru til, þegar Sigurður Stefáns-

son kemur að sunnan í vor, og ítreka jeg

það nú aptur, og legg jeg hér inn fullmakt

handa þér, því Sigurður skrifaði mér að

hann þyrfti, eins og eðlilegt er, bið jeg

þig að borga fyrir mig afhendinguna, ef

hún kostar nokkuð við þig og færa mér

allt til reiknings síðar. - Kona m.

biður þig að útvega sér eitt lóð af vír, en

hún vill hann ekki nema hann sé góður

og svo smár sem unnt er því hún á nóg

af þeim grófari, sem ekki er brúkandi


bls. 2

nema í snúrúr; einnig biður hún mig að spyrja

þig hvað þær selji þarna hjá þér, að baldíra

framaná treyjubarma og hálsmálið, með sama

uppdrætti og var á uppslaginu, þegar þær

leggja allt til sjálfar; hún sendir þér

2rd uppí vírinn. -

Þinn einl. frændi

Ó. Sigurðsson











bls. 3

AUÐ SÍÐA


bls. 4

S.T.

Herra Málari S. Guðmundsson

í/Reykjavík


  • ATH Ólafur hefur skrifað til hliðar í hornklofa:

Fylgja 2rd s.m






  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar