Bréf (SG02-103)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: kvenbúningur
  • Efni: „Beiðni um útvegun á efni í kvenbúninginn. Pör þau er S. var beðinn að láta smíða, er eunn ókomin, en ferð fellur og verða þau tekin ’ef þau eru búin’.“ 498551 Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Jón á Frostastöðum

Texti:

bls. 1


Ási 23. Sept. 1863

Kæri frændi!

Rétt í því Erlendur kaupmaður

er nú að fara af stað, fær kona

mín boð frá kunningjakonu sinni

einhverri þeirri bestu, og biður

hún hana að útvega sér hjá þér,

sem ert allt í öllu með kvenn-

búninginn - baldíringu á treyju

og belti, því þær eru nú farnar að

álíta að það sé eingin þörf á að

sauma í treyjurnar sjálfar, þó þú

hafir haldið því fram. -

Skrifaðu mér nú til með

næstu ferð, sem líklega verður

með Jóni á Frostastöðum ef

hann kemst suður með féð, og

segðu mér hvort þú munir

geta þetta í vetur og þar með

hvað það muni kosta, því

borgunina áttu að fá útí hönd

Þinn frændi

Ó. Sigurðsson

Jón tekur af þér

pörin ef þau eru búin.


  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar