Bréf (SG02-104)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 9. október 2013 kl. 09:50 eftir Eoa2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. október 2013 kl. 09:50 eftir Eoa2 (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:104 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 10. jan. 1864
  • Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
  • Staðsetning höfundar: Ási
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

  • Texti:

bls. 1
Ási 10. Jan. 1864
Kæri frændi!
Hafðu þökk fyrir 2ö bréf af 8. Oktobr og 23 Juni
þ.á. og því fyrra fylgjandi hvítann vír eins og
vera átti, því kona mín vill ekki hinn gullna,
einnig 2 uppdrætti sem hún biður mig þakka
þér alúðlega fyrir, því henni líkuðu þeir betr
en allir sem þú hafðir áður sendt henni.
Þar sem þú í síðara bréfinu segist geta
útvegað baldýringuna sem jeg falaði á treyju
og belti fyrir 12-13rdl. Þá bið jeg þig að
gjöra það ef þú getur svo snemma, að hún
komist með næstu póstferð, og hún á að vera
hvít. Illa gengur með alþingistíðindin, en
jeg vona þú hafir tekið þau út, svo Rípurhr.
tapi þeim ekki fyrir trassaskap; mest leiðist
mér eptir þeim seinustu, að fá ekki að sjá þau,
jeg vildi þú gætir komið þeim fyrir mig á
póstinn, en það mun ekki hægt þó þú vildir,
svo vel gjöra, að borga fyrirfram, mót endur-
gjaldsvon af mér. Þá er ekki betra með
beltið góða; það vill til, að jeg er ekki mjög
bráðlátur, en mér þykir það vest ef þú
hefur það íllt af mér, að tapa fé í þenna
ólukku gullsa, þú mátt til að ólmast við
hann, svo hann flýti sér. Jeg veit nú að
sönnu ef þessi pör koma nokkurntíma, þá
verð jeg þér talsverðt skuldugur, en jeg veit
ekkert hvernig þér líður, eða hvert þú stendur
þig nokkuð, svo þú hafir lánstraust, sé það,
þá er allt gott, því borgunina skaltu fá með
næstu ferð, ef allt fer ekki því verr í vetur.
Þinn frændi
Ó. Sigurðsson


bls. 2
AUÐ


bls. 3
AUÐ


bls. 4
S.T.
Herra Málari Sigurður Guðmundsson
í/Reykjavík



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir, breytt Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: