Bréf (SG02-108)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:08 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:08 eftir Olga (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG 02:108 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 12. des. 1866 * '''Bréfritari''': [[Ólafur Sigurðarso...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:108 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 12. des. 1866
  • Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
  • Staðsetning höfundar: Ási
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: Sigurður Vigfússon gullsmiður, Rabol, Jón Sigurðsson, Jón Guðmundsson, Sveinn Skúlason

  • Texti:

bls. 1
Ási 12. Dec. 1866
Góði frændi!
Hafðu kærar þakkir fyrir tilskrifið af
22 Marts í vor, sem eg mun aldrei hafa
svarað. Nú er Sigurður gullsmiður búinn
hreinsa fyrir sínum dyrum, og senda mér
pörin og fleira smíði uppá 57rdl. (57)
þaraf skrifar hann mér að þú hafir borgað
10rdl og Rabol?* 2rdl. Við gjörðum upp
reikninginn í fyrra, og þá mynnir mig
ekki betur, en eg teldi uppá, og þá líka
að þú hefðir borgað honum í fyrravor
25 Aprí koffur sem þú sendir mér þá,
en nú stendur það í reikningnum,
og seinast lofaðir þú mér að borga
honum 5rdl. þegar hann væri búinn
að senda mér beltið, og það er nú lík-
lega ógjört enn; svo eg er nú í 45rdl.
skuld við hann eptir þessu; um það
gætir þú kannske hugsað og talað svo
við hann fyrir mig, því eg vildi helst
ekki þurfa að borga honum neitt,
fyrr en eg fynn hann sjálfur í sum-
ar ef eg lifi; því á Alþing vil eg koma
í annað sinn ef eg verð ósjúkur og
þá skaltu fá skerborðið, því það er ekki
tapað.


bls. 2
Já, eg minntist á, að eg mundi koma
í Reykjavík ef eg gæti, en eg veit eg á þar
þó fáa vini, einkanlega fyrst eg var einn
af þeim sem fylgdi skoðun Jóns Sigurðs-
sonar með að fella fjárhagsmálið;
hvernig tala þeir um það núna í Vík?
og hver er sá sem skrifar alla þessa
löngu skammarollu um okkur meiri-
hlutann í Þjóðólfi? Það er ekki Jón
Guðmundsson, því það er ekki hans
stíll; er það Sveinn Skúlason? Mér
þykir núna vest, að hafa ekki fengið
að sjá Félagsritin, (þau eru víst
komin til ykkar) því mér þykir
líklegt að Jón skrifi þar eitthvað
um þetta góða mál. Gandreiðina
hef eg fengið; hún er nógu góð í þá
skuld. Héðan er fátt að frétta, hey-
skapur í minnstalagi í sumar en nýt-
ing góð; bærileg vetrartíð til þessa,
enn þó kominn æðimikill gaddur á jörð.
Fyrirgefðu þetta flýtirisp.
Þinn frændi
Ó. Sigurðsson.



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: