Bréf (SG02-110)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 28. október 2013 kl. 14:26 eftir Eoa2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. október 2013 kl. 14:26 eftir Eoa2 (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:110 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 24. júní 1871
  • Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
  • Staðsetning höfundar: Ási
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

  • Texti:

bls. 1
Ási, 24. júní 1871.
Kæri frændi minn!
Eg þakka þér fyrir tilskrifið á
döngunum. - Nú má eg ekki vera að
skrifa þér neitt, enda er mesta
erindið að senda þér boðsbréfið með
4 áskrifenda nöfnum úr Rípurhrepp,
fleiri vildu ekki slá til. Hér er
nú komin grasvöxtur í besta lagi,
nóg skyr og smér hjá hverjum manni,
því búið er að færa frá allstaðar.
Ullarprís lítur út fyrir að verði góð-
ur hér nyrðra, yfir 40sk. en matvara
verður sjálfsagt nokkuð dýr. Ekki
er neitt skip komið enn þá á Sauðár
krók.
frændi þinn
Ólafur Sigurðsson.



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: