Bréf (SG02-112)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: vefstóll, þjóðbúningur, ritgerð
  • Efni: „Vefstóll Garða Björns. Nýir þjóðbúningar, kostir hans og gallar. Úr Ólafs og væntanleg ritgerð á því, sem Sigurður á að sjá um milligöngu á.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: séra Guttormur ?, Garða Björn, Páll Vigfússon, Bergur hinn rakki, Sigurður Vigfússon gullsmiður

Texti:

bls. 1

Ási, 21. sept. 1872.

Kæri frændi!

Eg þakka þér fyrir bréfið af 27. júní

sem sira Guttormur færði mér. Það

hygg eg þú hermir rétt, að við höfum

þar fengið góðan prest; hann verður

hjá mér til húsa í vetur. -

Vefstólinn hans Garða Björns ertu

hálfhræddur um, og eg er það líka, en

eg held að skytta hans með öllum

sínum útbúnaði gæti vel notast á

fín vaðmál hjá okkur, ef þú gætir látið

mig fá góða teikning af því öllu saman.

Eg er búinn að fá að sjá þjóð-

búninginn þinn eða ykkar. Páll

Vigfússon kom hér á honum. Mér

líka stuttbuxurnar í mörgu tilliti

vel, en þó sé eg, að þær eru skjól-

litlar um legginn í vetrarhörkum,

svo menn þurfa þá að vera í þrennum

sokkum ef vel á að fara; en við

sumarreiðar og slátt eru þær góðar,


bls. 2


svo það kemur valla fyrir að skéra þurfi

saur neðan af þeim, eins og Bergur - hinn

rakki gjörði á klæðum sínum forðum;

en treyjan og vestið lízt mér ekki vera

eins hentugt á þessu kalda landi okkar,

eg vil hafa á þeim dálítinn kraga, því

það er hentugra; það má vera standkragi

ef vill, eg er ekki svo fastur við flákrag-

ana. Hugsaðu þig um þetta. Eg veit

að þú vilt fylgja því gamla sem mest, en

þegar nú á að fara að taka upp búning-

inn, vil eg láta laga hann um leið og

fella burt það ljótasta og óhentugasta. -

Þegar eg var á þingi í Vík keypti

eg mér nýtt úr; en nú er það hætt að

ganga, svo það þarf að hreinzast, en eg

vil ekki koma því til fúskara, því

Sigurður gullsmiður Vigfússon sagði mér

að eg skyldi hvorki koma því til sín

eða annarra hér á landi, þegar eg þyrfti

að láta hreinsa það, því þau réttu verk-

færi vantaði hér. Eg sendi þér nú úr

þetta, og bið þig að láta það sigla, en

því bið eg þig fyrir það, að eg hugsa

þú þekkir einhvern góðan úrsmið ytra,

því bæði eg og fleiri hafa reynt það


bls. 3

að til eru svikulir úrsmiðir, sem illa

gjöra við úr, en setja þó nóg upp.

Eg bið þig því sem bezt fyrir úrið

því mér þykir vænt um það því það

gekk ágætlega. 3rdl. fylgja

með, sem eiga að borga aðgjörðina

og flutning þess norður ef þú kemur

því á póst, en hrökkvi þeir ekki

borga eg það sem ábrestur síðar.

Eg bið þig að forsigla úrið þegar

þú sendir mér það aptur. -

Fyrirgefðu þenna flýtiseðil. -

Þinn frændi

Ólafur Sigurðsson





  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar