Bréf (SG02-113)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:10 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júlí 2011 kl. 02:10 eftir Olga (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG 02:113 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 12. jan. 1865 * '''Bréfritari''': [[Ólafur Sigurðarso...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:113 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 12. jan. 1865
  • Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
  • Staðsetning höfundar: Ási
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

  • Texti:

bls. 1

*ATH Sigurður hefur skrifað í efra vinstra horn:
her með borgað úr 4 Rdr.
31 Janúar fynist?* úrláð?*
og þing tíðindi
Ási 12. Janúar 1865
Kæri frændi!
Hafðu þökk fyrir bréf þitt af 4. Nóv. f.á. og því
fylgjandi 1 lóð af sylfurvír sem þú átt nú hjá
mér fyrir, og líka fyrir afhending tíðindanna, og
legg eg hér inn 4rdl. fyrir þetta hvorttveggja, þó
mér þyki þessi afhending helzt til dýr, þá á
það ekki að lenda á þér. Nú fer eg að
verða vongóður með pörin, fyrst gullsi er byrjaðr
á þeim, enda er enn beðið eptir þeim, með ótrú-
lega góðri von; kannske þau komi nú fyrir
páskana. Við baldýringuna skulum við
hætta héðanaf, fyrst þú ert líka búinn að tapa
þínum beztu konum; eg held kona mín reyni
til að basla upp baldiríngu handa þeirri sem
bað hana að útvega sér það í fyrra. En hún
vill fá hjá þérlaufaviðarkoffur í staðin, ef
þér væri það hægt, og láta það fylgja pörunum,
einnig biður hún þig að útvega sér með næsta gufu-
skipsferð 20al. af ekta sylfurstímum, fremur
mjóum, ætlar hún þær utan við treyju leggingar
og þessháttar, en þær koma hér aldrei nema svikn
ar, og getur hún þær ekki liðið. -


bls. 2
Eg hefi skoðað þingstaðinn á Litlagarði og eru
hérumbil 30 búðartóptir sjáanlegar utan túns. túnið
er nú lítið, mjótt og lágt; það liggur út og suðr
en frá túngarðinum og austur á brekkutúnina,
eru 12-14 faðmar, en á sjálfri brúninni eru
flestar búðirnar og snúa flestar þeirra út og
suður og dyrnar við annannhvorn stafninn nema
á einni, þar eru þær austaní miðja hlið, en flestar
eru þær vestaná. Fyrir norðan túnið eru líka
nokkrar; margt af þessum búðum er 5-6 faðmar
*langar*(y) á lengd, og undir 2 faðma á breidd; sumar
eru líka litlar. Suðaustan við túnhornið er
hringur, 12 faðmar í þvermál, og gjörir túngarður-
inn einn part af honum, en þó ekki gafl, eða
líti á hringinn. Í honum miðjum eru 2 tóptir
samfastar 2 faðmar á lengd, og 1 á breidd. Þér
til skilningsauka set eg teikning hér fyrir
neðan, en ekki skaltu láta stinga eptir henni
því það kunna að vera á henni einhverjir gall-
ar. -
Þinn frændi
Ó. Sigurðsson

*ATH neðst hefur Ólafur teiknað upp túnið og bæjartóptir


bls. 3
AUÐ SÍÐA


bls. 4
S.T.?*
Herra Málari Sigurður Guðmundsson
Fylgja í/Reykjavík
4 rdl.



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: