Bréf (SG02-144)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 12. júlí 2011 kl. 22:21 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2011 kl. 22:21 eftir Olga (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG 02:144 Bréf frá Pétri Jónssyni, bónda í Hofdölum * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 2. jan. 1864 * '''Bréfritari''': Pétur Jónsson frá Hofd...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:144 Bréf frá Pétri Jónssyni, bónda í Hofdölum
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 2. jan. 1864
  • Bréfritari: Pétur Jónsson frá Hofdölum
  • Staðsetning höfundar: Hofdalir
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: Guðmundur Pétursson, Jón Pétursson og Ólafur Pétursson, Þóra ?, Sigurður ?, Steinn ?, Þóra ?, Hr K. Friðriksson,

  • Texti:

bls. 1

*ATH í efra vinstra horn stendur skrifað: Svarað

Hofdölum þann 2 Janúar 1864

Ástkjæri frændi!
Guð gefi þér góðan dag og gleðil: Nýtt ár!
Það er lángt síðan átti og enda þurfti á?* hripa
þér línu, en eg hefi að undanförnu verið alltof
óframfærinn og þúngur á mér til þessháttar og
er það raunar enn; þó eg nú loksins myndist
við það, þá verður það frjettalaust og ekki nema
til að láta þig sjá að eg er tórandi og man þig
og veit af þér. Eg þarf *ekki*(i) og ætla ekki að segja þér
lát konu minnar, þú hefur bæði frjett það munnl:
og bréflega í Norðanfara; Af mér er fátt að segja
eg held váðarstúlku?*, Eg á því sama sem fyrri, er
í óskiptu búi, þú fengist ekki til að halda
við bú á svona jarðnæði?* og hafa fyrir 3 börnum
í ómegð ef best geingi það hálfa; Börnin heita
Guðmundur, Jón og Ólafur, búið hafa: Þóra, Sigurður
Steinn og Þóra önnur, öll fyrri en módurin. eg
hefi 12 mann í heimili, 5 kýr og rúmar 50 ær en
fátt af öðru fje, því næstliðin ár hafa ekki
leift mörgum talsverða gildsauði eða lömb.
yfirhöfuð líður mér bærilega að öllu útvortist
ástandi, hund?* rólegur, læt eg ósagt, heilsan er
góð að öðru en því að eg er að tapa talsverðu af
sjón, mest um rúm 3 missiri. Nóg um þetta -
Ekki fæ eg ímyndað mér að eg dugi sem konúngl.
embættismaður, fyrst eg sagði af mér hreppstjórn
bls. 2
eptir 4 ára viðveru, þrátt fyrir það þó mér væri
boðið kaup til, eg vildi ómögulega standa í því
þegar prestaskiptin urðu í Viðvík og brauða sam„
skipan var þegar komin á, enda var það betur ráðið
þar eg missti aðra höndina litlu síðar, það er ekki
svo mikið að eg sje nú leingur meðhjálpari þar eða for„
saungvari, allt fór það með brauðs rúgskermi?*!!, það
eina gaf eg eptir að eg held Djákna bókina, sem áður.
Margt vil eg nú vita og óska þú villdir uplysa mig
um það eg nú spyr. Hvör hafði á hendi umsjón og afhend„
íngu þíngtíðindanna árið 1862? þó ljet eg taka 1. ár„
gáng þeirra handa hreppnum, og varð móttakarinn
að greiða afhendaranum 40*N*(upp) og þetta kölluð sölulaun,
þó eiga hrepparnir géfins rétt til tíðindanna, að frá
teknum umbúðum og flutníngi, hvernig stendur þá
á þessum sölulaunum og hver rjettur er til þeirra?
Hvað líður prentun tíðindanna 1863? Er það satt
að uppastúngu um að ráða bót á prestafæðinni væri
valin nefnd manna, enn hún samt verið ónýtt í þínginu?
og hvað kom til þess? þókti þínginu prestar nógu„
margir eða um of? - úppástúngan var þó ekki óþörf. -
Heldur þú að nú sjeu fáanleg í Reykjavík landa~
bréf þau, sem sameiginlega kallast *Atlas*(u), í hverju
ásigkomulagi eru þau ef fást, og hvað kosta þau?
Eg hefi heyrt frá þeim sagt, en hefi ekki af þeim ann„
að?*; Ef mér syndist vera þolanlegt verð á þeim
og um vöndun þeirra svo löguð að eg gjæti hæglega
geimt þau óskrimað?*, hefur mér dottið í hug að bið„
ja þig útvega mér 1 stikki. Mér hefur leingi
bls. 3
leikið hugur á þeim stærsta og fullkomnasta Ís„
lands uppdrætti, en af því eg hefi ekki husrúm fyrir
hann &?* vinu lagi verð eg að fara þess á mis. -
Er það mögulegt að hér komist upp forngripasafn
fyrst held eg að lítið þess háttar hafi verið eða sje hér til,
að minsta kosti man eg ekki nje veit af neinu sem þú
gjæti(sic) þjenað; Svo er ekki ómögulegt að eitthvað af
því væri fokið burt til annarra landa, líkt og flest
fornrit sem burt hafa verið og eru farin?* og sem
land vort hefur að líkindum aldrei gagn af nje gam„
*an. Máski þú farir að smíða og mála eptir forngr:
og safnir þeim á þann veg, eða þeir fáist frá öðrum lönd„
um og munu þeir þá verða full dýrir, En hver er fyrsti
tilgángur og nauðsin til þessa? og hver verða not af
þeim tilkostnaði fyrir landið? Eg hefi lesið
hjá Hr K. Friðrikss: um þetta í Þjóðólfi, og gjæti
eg sagt honum að fyrri ætti hann að fyskja til
útrýmingar á sunnlendska fjárkláðanum - í stað„
inn fyrir að halda honum við með ónýtum lækníngum -
en að skora á mann í samskot til forngripa hjallarinnar?*
gjætu menn kostað saman í þann sjóð, þá ættu þeir að
geta lifað og borgað skuldir sínar, sem flestir ætla að
safna í. Eg held þeim þyki nú komið nóg af svo góðu
og um þá best að hætta, Einúngis bið eg þig að fyrir„
géf þessar línur, en skrifa mér þó gott og greinilegt
*bréf um þetta, með fyrstu póstferð. -
Lifðu nú heill og vel, guð og sú sanna lukku veri
með þér! óskar vinsamlega
þinn vansæll frændi
P. Jónsson

allstaðar er hér pappírs„
laust í kaupstöðum.


*ATH á spássíu hefur Sigurður merkt við línur 11- 26 og skrifað undir:
„brennivín"

bls. 4/forsíða

Göfugur

Herra málari S. Guðmundss:

í Reykjavík



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: XX.07.2011