Bréf (SG02-154)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 12. ágúst 2013 kl. 12:08 eftir Edda (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. ágúst 2013 kl. 12:08 eftir Edda (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG:02:154 Bréf frá Sigurði Einarssyni til Sigurðar Guðmundssonar * '''Safn''': Þjóðminjasafn Íslands * '''Dagsetning''': 8. júlí 1860 * '''Bréfritari''': Sig...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG:02:154 Bréf frá Sigurði Einarssyni til Sigurðar Guðmundssonar
  • Safn: Þjóðminjasafn Íslands
  • Dagsetning: 8. júlí 1860
  • Bréfritari: Sigurður Einarsson
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni: Safn Sigurðar Guðmundssonar Aðfangabók Þjóðminjasafnsins bls. 57: „Ávítur fyrir að hafa ekki lokið við myndir af S. Thorgrímsson. Fyrirspurn um gang verksins og loforð um greiðslu fylgir.”
  • Nöfn tilgreind:

Kpmhöfn, 8/7.- 60.

  • Texti:

bls. 1


Kpmhöfn, 8/7. – 60
Kæri herra málari S. Guðmundsson!
Í óyndis úrræðum og grófustu gremju pára eg yðr þessar línr,
ekki yðr til neinnar skemtunar og ekki heldr til að
fræða yðr með merkilegum fréttum, með því líka því bæði
en ekki svo miklar til og líka veit eg, að þó þor væru, fáið þér
að heyra þær annarstaðar frá. Eg hef nefnil. skrifað Eiríki
Magnússyni – eg man ekki hvað opt!- og beðið hann að
seigja mér hvað myndunum líði, sem þér lofuðuð mér
að taka af S. sál. Thorgrimsén, hvort þér væruð búinn með
báðar, eðr hvort þér þá ekki væruð búin með þá einu
sem Frú Melsted átti að fá, um hana þykir mér allra
vest því fyrir hana er eg orðinn margfaldr svikari ef
hún enn ekki er komin veitr, eg lofaði Frúnni henni
í granleysi á fyrra sumar, án þess að hugsa útí að
það þyrfti svona langan tíma eðr að svona miklar
torfærur lægju til þessa stóra verks, en eg hefi ekki einu-
sinni fengið neitt að vita um þetta enn, auk heldr
fengið hina, sem átti að sendast mér híngað, og síðan
í fyrra haust, að eg vissi þér voruð búnir að taka myndirnar
af andlitum hinna heiðruðu og og æruviðugu alþingis-

bls. 2


manna, og þeir allir komnir í burt úr Reykjavík,
hefi eg fyrst á allann vetr verið vonandi og bíðandi,
já, og hlakkandi til með hverri póstskipsferð að fá þessa
mynd, en síðan voraði og til þessa tíma hefi eg alltaf
verið bölvandi og ragnandi þegar skipið hefr komið
hvað eptir annað og eg ekki fengið hana, og hvað verra,
ekki einusinni fengið að vita hvað hinni líði,
sem vestr átti að fara, eptir þó fleirum sinnum að hafa
beðið Eirík að seigja mér það. Nú bið eg yðr um fram
alla muni
að seigja mér: hvort þessi optnemda mynd
sé búin, hvort hún sé komin vestr og hvort þér þá séuð
búnir að fyrir hana borgunina; séuð þér nú ekki
búnir enn með hana eða báðar, bið eg yðr blessaðann
að senda mér með þessari ferð „Originalinn”, nema
með svo feldu móti eg megi reiða mig uppá að þér
yrðuð búnir með báðar, ekki seinna en að eg gæti
fengið mína með póstskipsferðinni næst eptir
þessa, ufl.<ref>[ath skrift]</ref> í September, og bið eg yðr því ennfremur,
ef þér ekki sendið mér þá gömlu með þessari
ferð sem eg vil allteins vel, því annaðhvort fær maðr
það gjört hér á styttri tíma en einu til tveim árum

bls. 3


eðr ekki, að skrifa mér til með þessari ferð og láta mig
vita hvort eg ef má reiða mig uppá að fá þær með
áðrnefndri póstskipsferð, svo eg þó, í það minnsta
um stund, hætti að breyta móti öllum hreinum
Móral með ógurlegu bölvi og ragni, og þó þér ekki lituð
á neitt annað en það fyrst hvað þér syndgið með
að pretta mig og draga mig nú svona lengi á þessu,
og svo með að koma mér, aumíngja barninu, til að
bölva og bansingja, eg vil ekki seigja yðr, þá virð-
ist mér það næg ástæða til að þér viknuðuð dá-
lítið, og færuð að hræða yðr með þær eptir möguleg-
leikum, og þó þér bæruð það undir guðfræðíng, mundi
hann verða mér í því að öllu samdóma. Jæja, eg
lifi þá hér fyrir það fyrsta til næstu póstskipsferðar,
í þeirri von og því trausti að eg ekki þurfi lengi
héðanaf að bíða og vona og biðjá án þess að þér bæn-
heyrið mig, með því líka að eg veit ekki hvað lengi eg
kann að verða hérna úr þessu, en eg þarf endilega að
fá hana árð en eg fer héðan. Sé nú þessi dráttr kom-
inn af því að þér séuð hræddr um að þér ekki
fáið borgunina fyrir vinnuna, þá verð eg að

bls. 4


geta þess, að hvað þeirri viðvíkr, sem Frú Melsted á
að fá, þá er hún víst ekki svo ráðlaus að hún ekki
geti borgað 6 dali, en um viljan skal eg ekki tala
um, því eg veit hvað henni er annt um að fá þessa
mynd, og þó hún væri mikið drýrari en þetta; skal
eg innistada yðr fyrir að þar mun engi fyrir-
staða verða; en hvað hinni viðvíkr, þá verð eg að biðjá
yðr að inná yðr til Eiríks, og spyrja hann og þau hjóna …
hvert eg ekki er alþekktr rávendnis dáunmaðr bæði
af þeim sem þekkja mig og ekki þekkja mig!!! annars skal
eg sjá til að Eiríkr fái peningana fyrir þessa mynd,
svo þér meigið halla yðr til hans þegar hún er búin,
Fyrirgefið þér nú hvað eg er andskoti imperdinant,
og annars allann þvættinginn, og lifið þér vel!
Yðar skuldbundinn
Sig Einarsson
Stúrlkurnar biðja kærlega að
heilsa yðr, bæði í G. götunni og
annarsstaðar, og þykjast mikið
sakna yðar. Yðar S. E.


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: Ágúst 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar