Munur á milli breytinga „Bréf (SG02-159)“

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Lína 29: Lína 29:
 
[[File:SG02-159_1.jpg|380px|thumb|right| <br /> [http://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=498402 Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.]]]
 
[[File:SG02-159_1.jpg|380px|thumb|right| <br /> [http://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=498402 Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.]]]
  
''<div n="1">
 
 
            <p>
 
  
 
              
 
              
Lína 238: Lína 235:
  
  
 
''
 
  
 
----
 
----

Útgáfa síðunnar 10. september 2015 kl. 20:27

  • Handrit: SG02-159 Bréf frá Sigurði Péturssyni, bónda og hreppstjóra, Ási
  • Dagsetning: 25. ágúst 1850
  • Staðsetning höfundar:Ási
  • Staðsetning viðtakanda: Kaupmannahöfn

  • Lykilorð: andlátsfregn
  • ‘‘‘Efni’’’: „Andlátsfregn föður Sigurðar. Skipting á eignum hans. Þær breytingar sem þetta kann að hafa á hag Sigurðar. Beiðni um að Sigurður segi um áform sín, námstíma sem og annað.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Herra Guðmann, Gl? Björns á Hofstöðum

Texti:

bls. 1



Ási dag <strong">25 Ágúst 1850




Sæll og blessaður Nafni minn!




Þó eg setjist nú að skrifa þjer nokkur orð, er ekki til að tiltína


fréttir - er fáar tilfalla merkilegar - því þá merkustu veit eg Móður þ:


er búin að láta rita þjer, um fráfall Föður þ: sem bæði henni og ykkur


systkynunum er því merkilegri, sem þið þekkið yður hafa mist meira, með


Eðladyggðugum og aðstoðarfúsum ástvin; um afleiðingu afgángs hans mætti


eg heldur víkja nokkrum orðum: því þó eg í firstu vænti að yfirvaldið aflaði


mer einhvurja tilsjón með móður þ: hjet það so - þegar til kom - að síslum:


sagði: "eg mætti til að sjá til með ykkur bræðrunum og ekki heldur setti


han móður þ: neirn, því han þekti hjá mjer þan hæfilegleyka að eg gjæti


hvorttveggja". þó eg nú vildi yk(k)ur öllum sem best, fin eg mig vanta


bæði dug og framkvæmd til þessa; skipti gátu ekki ákomist í vor nema


á ánum og urðu af þeim 4ar í br:lóð og lét eg reka þínar á fjall og bíst


við að slátra í haust - ef fást - og selja, eður mun það ekki verða vegur


in með það þjer tilsettum víst það lausa? og nú í bráð get eg ekki sjeð: að


öðruvísi meigi verða með það fasta. Hugsað hefi eg: að falla uppá við


skiptið: að þessa árs kostnaður þin sé tekin af óskiptu, en hvurnin teingda


bræðrum þ: líkar það, veit eg ekki, og þá verður skiptarétturin að skera úr


og ekki óttast eg lángvina óvild þeirra bræðra því áður mislíkað þeim


við mig í skipti eptir móður þeirra, og greri það fljótt. Viltu ekki


skrifa mjer - við tækifæri hvað þjer hugkvæmist um framtíðina ef lifir -


hvurt þessi nærverandi vísindi sjoirna þer eini frá apturkomu híngað,


þjer og löndum vorum til nitsemdar og hvursu mörg ár þú mundir þurfa


til að afljúka þessari lærdómsgrein, því þareptir mundi eg geta ritað þer


hvað lóð þitt mundi hlaupa hátt, sem þá líklega yrði felt við uppboð nest-


komandi vor, eður mun ekki best að höndla so með það heila bæði fast og laust?


heldur en taka lán með Rentu og selja það fasta í Pant? er skjaldan leigist


meir en Rentan er há af yminduðu kaupverði jarða eða parta þeirra:


um hvað þjer hugsast í þessu óska eg línu, en hvað þú anað skrifar af sjálfum


þér eður í fréttum fæ eg lesið hjá móður þini, því víst munum við verða sistkyn


meðan lifum. Um 10rd máttu biðja Herra Guðmann er eg fral betala


aptur í Höndlun hans her, í hvurn Kaupstaðin sem han vildi, og vona eg það


fást og getur þú til gamans borið saman hvaða snoðlíkt þetta er gjöfum


Björns á Hofstöðum, han held eg lifi til þess þú ert útfærður!!


Að síðustu bið eg Drottins anda: að stíra þínum léttfæru æsku fótum


frá snörunum, kena þer að hafna því skaðlega en velja það nitsama


þer til sanrar farsældar her og síðar! óskar einlægt móðurbróðir þin




S. Pétursson


ATH. Skrifað lóðrétt á pappírinn í miðju:




Til


Sigurðar Guðmundssonar




lærisveini frá Hofdölum í Skagafyrði




í Teyknifræði og fs: í Kaupmannahöfn





  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar