Bréf (SG02-177)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 19. nóvember 2013 kl. 12:08 eftir Eoa2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. nóvember 2013 kl. 12:08 eftir Eoa2 (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:177 Bréf frá Stefáni Einarssyni, stúdent, Reynistað
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 4. feb. 1861
  • Bréfritari: Stefán Einarsson
  • Staðsetning höfundar: Reynistað
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: Þórður Hreða

Texti

bls. 1
Reinistaðarkl. þann 4/2 - 61

Heill og sæll!

Nú þykir mér þú vera farinn að fá
þeim verkefnin þarna syðra, því ekki
kemur hann upp þessi búningur upp
án þess maður vinni að honum nokkuð.
Hvað getgátu þinni viðvíkur þá get eg sagt
þér með sönnu að hér er ekki ein framar
en önnur sem eg kæri mig um að prýða,
því væri það þá mundi eg útvega henni
fallegan íslenzkann búning þar uppá
mættir þú biggja. - Hvað því viðvíkur
sem þú spur mig að með búninginn
þá máttu reiða þig á það að hann
komist hér á, en einkum er tvennt á
móti því, annað er það að fáar eru hér
sem kunna að sauma þetta og svo er
Verte


bls. 2
annað að þær þykjast ekki hafa efni á því
að kaupa þetta belti og koffur, en samt er
eg viss um að hann mun komast upp, því
öllum þykir hann fallegur, nema einstaka
gömlum konum, sem eiga þann gamla og
þar kemur nú fram gamla eigingirndar
orðtakið að hverjum þykir sinn fugl
fagur. Blessaður sendu mer annan
uppdrátt eins á allan fatnað og snið af möttli og skal
eg borga þér því að eg skal lána þér
hest norður hingað í sumar ef þú vilt
losa þig um tíma við skvaldrið þarna
syðra, meðan sem róstusamast er,
það gæti vel verið að þú fengir her
nokkuð að gjöra og veit eg eina
5 sem þú mundir af og kannski
fleirum. það væri nógu gaman fyrir
þig að gjöra það. Ekki hef eg séð
nein tjöld nema hér eru ein gömul
sparlök, og tvær fjalir hef eg séð


bls. 3
í Halatungu, sem eiga að vera úr Skála
sem Þorður Hreða byggði (sem að líkindum
aldrei hefur til verið.
Skrifaðu mer með pósti og
lifðu heill og vel
Þinn einl. vin

St. Einarsson


bls. 4 / forsíða
*ATH skrifað lóðrétt á miðja síðu

S.T.

Herra Málari Sigurður Guðmundsson

í/
Reykjavík


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: XX.07.2011

(Titill 1)


Sjá einnig

Skýringar

<references group="nb" />

Tilvísanir

<references />

Hlekkir