Bréf (SG02-179)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 14. júlí 2011 kl. 12:54 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júlí 2011 kl. 12:54 eftir Olga (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG 02:179 Bréf Steingrími Thorsteinssyni til Sigurðar Guðmundssonar * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 29. maí 1866 * '''Bréfritari''': Steingrímu...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:179 Bréf Steingrími Thorsteinssyni til Sigurðar Guðmundssonar
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 29. maí 1866
  • Bréfritari: Steingrímur Thorsteinsson
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: Magnús Eiríksson, Eiríkur Jónsson, Jón Sigurðsson, Vessel

  • Texti:

bls. 1
Kaupmannahöfn 29 Mai 1866

Kæri vinur!

Þú hefur lengi átt hjá mér þakklæti fyrir gott
bréf sem þú skrifaðir mér í haust eð vor, og sendi
eg þér nú mitt misserisgamla þakklæti. þó nú
sé langt síðan að eg fékk bréf þetta, þá get eg
samt ekki annað enn minnzt þess nú, að mér
finnst það innihalda mikið réttan dóm um Ísland.
einkanlega um varnarskjalið þeirra 23 fyrir M. Eyrík
sson, og er eg þér samdóma í því. það skjal
var líka komið frá vindamiklum og sjálfbyrgings
legum manni nefnilega Eyrík Jónssyni, en ekki
er nú vert að eyða um það fleiri orðum, því
það er um garð gengið. Satt er það líka að Ís-
-lendingum hér hættir opt við að leggja ósanngjarna
dóma á verk manna heima, einsog þeir haldi að
þeir séu orðnir æðri verur enn landar þeirra. þetta
kom fram í Fjölni; aldrei hjá Jóni Sigurðssyni. Nú,
eru þetta svo fáar hræður sem hér eru og fara líklega
fækkandi héreptir. - þeir sem í seinni tíð hafa komið
(i)*hingað* frá skólanum, síðan hann varð evrópæiskur, virðast
mér flestir hálf ómerkilegir og dauðýlfislegir, og er
auðséð á því að skólinn núna kærir sig lítið um að
innræta lærissveinunum tilfinningu fyrir því sem fagurt er


bls. 2
nema ef þetta skyldi liggja í aldarhættinum
eins á Íslandi og annarsstaðar, *því*(i) nú eru menn viðast
hvar orðnir rammprósaiskir?* og hugsa ekki
um annað en peninga. Meðal Íslendinga er hér
sérlega dauft, engir samfundir og enginn söngur
því enginn kann að syngja eða kærir sig um það,
herfileg fáfræði um allt nema examens "fögin",
og um lítið talað annað en Tivoli og "góða dje",
þetta er það almennasta, þó frá því kunni að
vera ein eða tvær undantekningar. - það mun
vera erfitt fyrir þig að striða fyrir fornmenja
safninu, svona án þess að hafa nokkurn styrk,
en stjórninni mun þykja þesskonar óþarfi. - Þeir
álíta Ísland svona fyrir hálfgildingi Skrælingja
land, og svo gjöra líklega Danir ávallt, eða
réttara sagt Kaupmannahafnarbúar. Það hefur
allténd verið þeirra regla að hirða ekkert nema
það sem er næst sér, það sem þeir kalla hjartað
úr ríkinu, þó að drep komi í útlimina, það
gerir ekkert til eptir þeirra meiningu. Verði þeim
að trú sinni.
Eg sé að Vessel kunningi þinn hefur fengið
1000 *rd*(upp) ferðastipendium, eg hef ekki séð hann
eg held nærri því í nokkur ár, hann hefur
byggt eitthvað út á Tivoli, en ekki hef eg
séð það, því eg kem þar aldrei. -
Forláttu nú hvað línur þessar eru ómerkilegar
og láttu mig ekki gjalda þess

þinn vinur

St. Thorsteinson


bls. 3


bls. 4/for

S.T.

Herra málara S. Guðmundssyni

Reykjavík



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: XX.07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: