Bréf (SG02-201)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 18. júní 2013 kl. 13:58 eftir Edda (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2013 kl. 13:58 eftir Edda (spjall | framlög) (→‎bls. 2)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG:02:201 Þorleifur Jónsson
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning:
  • Bréfritari: Þorleifur Jónsson
  • Staðsetning höfundar: Hvammur
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda: Reykjavík

  • Lykilorð:
  • Efni: Safn Sigurðar Guðmundssonar Aðfangabók Þjóðminjasafnsins bls. 65-66: „Bréf frá Þorleifi Jónssyni, presti, Hvammi í Dölum. 10.2 x 16.7 cm. Án dagsetningar. Efni: Ekki er hér um eiginlegt bréf að ræða, heldur er þetta listi yfir forna gripi í

fórum Þorleifs. Þessir hlutir virðast eiga fara á forngripasafnið? Bréfinu fylgir umslag og er á því innsigli heilt, svo og vísur og riss eftir Sigurð.”

  • Nöfn tilgreind:

Listi yfir nokkrar fornmenjar frá Hvammi

  • Texti:

Umslag


Herra Sigurðr Guðmundsson málari
í Reykjavík
Falið á hendr Guttormi
Vigfússyni student á
presstaskólanum
til beztu skila.

[bakhlið]
2 flest á landi finst mér fernú verst,
flestir hafa af illu mest,
hrestar stupivíni hæfa best,
hesta sálir fyrir prest.
1fæstflest á landi finst mér verstbest
fæstir hafa’af illu mest;
hrestar staupi hæfa verst
hesta sálir fyrir prest.
[innsigli]
[teikningar af stólpum og mælingar]

bls. 1


Listi
yfir nokkrar fornmenjar frá Hvammi
1. Skorinn kistill skrálæstur; Hann kom í
eigu Mad. Sæunnar sál Einarsdóttur circa
1776, þegar hún var þjónustustúlka hjá móður
bróður sínum Ásmundi presti Pálssyni á
Auðkúlu; áður laungu fyrri hafði þessi kistill
verið eign þeirrar, sem fángamarkið á honum
sýnir, sem eg man ekki að greina; en hvenær
hún sagði, að þar nyrðra hefðu verið settir á hann
nýar lamir og skrá, man eg ekki heldur.
Sæun sal. var seinni kona föður míns sáluga.
2. Stokkur skorinn með upphleyptum rósum var
upphaflega kominn úr eigu Mad. Jarðþrúðar
Jónsdottir Benediktsen, sem línskríni, þegar
hún var heimasæta hjá föður sínum Jóni presti
Sigurðsyni í Holti (undir) i Önundafirði, circa
1790, og þegar hún kom hjer á slóðir að Arnarbæli
gaf hún stokkinn vinkonu sinni; hann kom fyrst
fyrir sjónir á vissum bæ, sem ljósberi í fjós.
3. Skápgarmur: hann var úr eigu Gunnars
profasts Pálssonar í Hjarðarholti, og mun hafa
fluttst með honum þángað frá Hólum í Hjaltadal
1753, en fjell í eigu Sigurðar prests Þorleifssonar
ásamt öðru fleiru þegar hann 1794 tók þar við brauð-
inu. Skápinn vantar lokið sem hefur enn ekki fundist.
4. Rúmfjöl skorin með höfðaletri; hún hefur sinn

bls. 2


uppruna frá Þórði prófasti Þórðarssyni 1724,
hjer i Hvammi, og hjelzt við hjá sonum hans
hjer, prestunum Þorsteini og Einari, uns farðir minn
sal. tók við, og eg eptir hann.
5. Trafa keflið: það mun hafa komið að
norðan, með stjúpu minni, einsog no1.
6, Prjónastokkur: Hann var úr eigu – að mig
mig minnir – tengdamóður minnar, prests-
ekkiu Ingibjargar Magnúsdóttur; einsog
7. Flosstóll<ref>Vefstóll</ref> – sem enn er hjer heima – sem hún
eignaðist á Hamraendum í Miðdölum,
þegar hún var þar þjónustu stulka hjá föður
systur sinni Þorunni Ólafsdóttur, konu Síra
Bened. Hannessonar um 1760, sem var orð-
lögð handiðnarkona.-
8, Stúfar hjeðan af úthöggnum kirkjuvind-
skeiðum, sem fyrri hefur verið fráskýrt, og
er hjer seinna fundin fjalarpartur af þeim
sem seinna á að senda ásamt no7.-
Þorleifur Jónsson


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd: handrit.is

  • Skráð af:: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: 6. 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar