Bréf (SG02-216)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 16. júlí 2011 kl. 15:06 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júlí 2011 kl. 15:06 eftir Olga (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:216 Bréf frá Sigurði Guðmundssyni til Steingríms Thorsteinssonar
  • Safn: [Þjóðminjasafn Íslands]
  • Dagsetning: 21. sept. 1860
  • Bréfritari: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning höfundar: Reykjavík
  • Viðtakandi: Steingrímur Thorsteinsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: Þórður Hreða

  • Texti:

bls. 1
Reykjavík 21 september 1860

Heill og sæll!

Mikið hefir mig lángað til að sjá línu frá
þér núna leingi, eg hefi ekki haft tíma við
í einustu ferðirnar að skrifa þér,
seinasta bréfið hefirðu líklega ekki feingið eða
eg hefi þá ekki feingið bréfið frá þér,
í því bréfi vildi eg vita hvort þú
geimdir *möppuna*(u) mína stóru og *hjálmin min*(u)
um það tvent vildi eg vita, mér líður við það
sama og fir (all vel) annars og éteg?* ekki sagt
af mér neitt merkilegt framar en vant er,
með búnínginn geingur allvel einn er kominn
norður í skagafjörð góður og fullkomin,
einn er á leiðinni vestur á vestfjörðu
einn er kominn vestur á mírar á prestdóttur
einn austur í vestur skaptafellssíslu á prestkonu
einn í austur skaptafellssíslu á prestdóttur
í Rangárvallasíslu eru þær að búa hann
til margar, og ein í arnessíslu en hér í
gullbríngusíslu eru komnar margar bæði
megin háttar og minniháttar en sem komið
er hefi eg gétað kosið úr þær sem eg hefi
helst viljað víða, og vona eg að eins fari
um tíma hér eptir, þegar maður er búin að
vinna þær helstu á hverju stórhéraði
þá fer þetta allt fljótt að grafa um sig
og það gérir það nú bráðum
hvernig líst þér nú á þettað?
það má svo að orði kveða að næst því að
sjá sjálft landið hafa flestir útlendir ekki


bls. 2
viljað sjá annað en búninginn sem náttúrulegt
er því hér er ekki annað að sjá sem er
þjóðlegt, firir utan biggingarnar sem má
telja eins konar íslenskt svínerí en ekki
íslenskar góðar og gamlar biggingar hátt.
allir útlendir sem ekki þekkja okkar sögur
og bókmenntir þeir verða að dæma um okkur
eptir öllu utvortis *biggingum*(u), *buning*(u) og
*siðum*(u) og öðru manvirki en siðirnir og man-
virkið er nær því ekkert, og valla biggingarnar
og þess vegna er firirgefanlegt þótt þesskon
ar ferðamenn sem ekki þékkja okkar sögur
á líti okkur skrælíngja, en eg held um að á
þessu sumri hafi búníngurinn frelsað oss frá
þessum dómi útlendra, því þeim hefir þótt
búningurinn mjög fagur og halda að hjá oss
muni mart fagurt og gott á eftir *þessu*(i) fara
þeir hafa og keipt hér framar venju mikið
af *kvenn*(i)silfri og eins feingið mindir frá mér af
búníngum, og eins tekið ljósmyndir af
öllum búníngunum *og eins látið búa til *dukkur*(u)*(i) þettað er allt rétt,
ef þettað er rétt hugsað sem eg higg þá sjáum vér
strax góðar afleiðingar þessa auk þess að
innlendur markaður kémst í gáng hjá kvenn-
fólkinu.
Eg hefi lítið ferðast í sumar en þó fór eg
austur að Geysir og Þíngvöllum, Geysir
var alveg eins og eg gérði mér hugmind um
en öðru máli var að gégna um Þíngvelli,
þegar men í sögum lesa um merkilega staði
hugsa menn sér þá optast mjög fagra á þann hátt
að manni mun optast þikja staðurinn ljótari
þegar maður kémur á hann en maður hafði
búist við, eg segi fyrir mig.



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: XX.07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: