Bréf (SG02-234)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 18. júlí 2013 kl. 11:47 eftir Edda (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2013 kl. 11:47 eftir Edda (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG:02:234 Bréf frá Eiríki Briem til Jóns Sigurðssonar * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 13. nóvember 1876 * '''Bréfritari''': Eiríkur Briem, pre...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG:02:234 Bréf frá Eiríki Briem til Jóns Sigurðssonar
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 13. nóvember 1876
  • Bréfritari: Eiríkur Briem, prestaskólakennari
  • Staðsetning höfundar: Steinsnes
  • Viðtakandi: Jón Sigurðsson
  • Staðsetning viðtakanda: Kaupmannahöfn

  • Lykilorð:
  • Efni: Safn Sigurðar Guðmundssonar Aðfangabók Þjóðminjasafnsins bls. 73: „Bréf frá Eiríki Briem, prestaskólakennara, Reykjavík, til Jóns Sigurðssonar, forseta og skjalavarðar, Kaupm.h. 17 x 20.9 cm. Dagsett 13.11.1876. Steinsnesi. Efni: Útgáfa á Þingvallakorti Sigurðar og ritgjörð er því fylgir. Útvegun á Íslandskorti.”
  • Nöfn tilgreind:

Steinsnesi 13. Nóv. 1876

  • Texti:

bls. 1


Steinsnesi 13. Nóv. 1876

Herra skjalavörður Jón Sigurðsson
Eg þakka yður yðar góða brjef; mjer er öldungis
sama hvort Þjóðvinafjelagið eða bókmenntafjelagið
kaupir og gefur út Þingvallakortið; en getur
Þjóðvinafjelagið gjört það? Því það er aðalatriðið
að kortið komist út. Ritgjörðin yrði rúmar 3 arkir
prentaðar, en þarf að hreinskrifast undir prentun;
henni fyljga mikil skilríki og heimildir, sem ekki
er ætlað til að prentast. Kortið sjálft er svo
lasburða að það er einganvegin til þess að fara
margra handa á milli; verðið var tiltekið svo
lágt, að mjer eígi sýndist nein áhætta fyrir
fjelagið að kaupa það ósjeð; hvað um það; eg vil
ekki sleppa kortinu út fyrir haf, me nema

bls. 2


vissa sje fyrir að það verði strax gefið út; eg get
ef til vill sýnt yður það í sumar í Reykjavík
eða sent yður það, ef eg yrði búinn að taka
kopíu af því, sem eg eigi hefi getið snúist
við.
Maður nokkur hefur beðið mig að útvega
sjer hinn stóra uppdrátt Íslands, ferníseraðan,
límdan á ljerept og settan á stokka; og vil eg
biðja yður að senda mjer hann við fyrsta tæki-
færi á Skagaströnd.
Kona mín og tengdamóðir biðja ástsamlega
að heilsa. Eg kveð yður svo með beztu óskum
Með virðingu
Eiríkur Briem.


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: Júlí 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar