Bréf (SG02-235)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: Þingvellir, kort, ritgerð, Bókmenntafélagið
  • Efni: „Útgáfa á Alþingisstað hinum forna, þ.e. Þingvallakorti Sigurðar og ritgjörð er því fylgir. Vangaveltur útgefanda. Áform um frekari útgáfu á efni frá Sigurði. Óvíst hvernig þetta kom. Ýmislegt fylgir & umbúðir utanaf tveim pökkum. Sitt af hvoru stimplað.“ Safn Sigurðar Guðmundssonar Aðfangabók Þjóðminjasafnsins Íslands (Sarpur, 2015)
  • Nöfn tilgreind: Sigurður málari

Texti:

bls. 1

Steinnesi 24. Aug. 1877.


Hr. forseti Jón Sigurðsson,

Eg sendi yður nú ritgjörð Sigurðar

málara um Þingvöll ásamt öllum

þeim lausu blöðum, er hjá henni láu.

Eg treysti yður til þess að þjer látið

Bókmenntafjelagið veita þessa ómerkilegu

þóknun sem fyrir kortið og ritgjörðina

120kr., sem eigi nemur ritlaunum fyrir

4 arkir af Skírni t.d. En vilji Bók-

menntafjelagið eigi hafa þetta, þá

treysti eg yður því heldur til að endur-

senda mjer allt saman skilvíslega

sem fljótast aptur, svo að það megi

þá hafa annarsstaðar á boðstólum; því

andvirði þess á að ganga til að gefa

út annað eptir Sigurð málara.







bls. 2

Jeg verð annars að segja að Bókmennta-

fjelagið kynni eigi að sjá sóma sinn, ef

það hafnar þessu, því þótt ritgjörð Sigurðar

sje í ýmsu ófullkomin, þá er þó án efa

eigi annarstaðar betra að fá um það efni,

og vissulega mundi það eigi rýra vin-

sæld fjelagsins, þótt menn vissu að það

kostaði kapps um að fá sem glöggastar

upplýsingar um Þingvöll, sem því erfið-

ara verður að útvega sem lengur líður;

og hvað kortið merkir, þá er Þingvöllur

nú síðan 1874 orðin svo breyttur að

eigi er framar unnt að átta sig á ýmsu

því sem kortið tiltekur.

Okkur hjer líður vel og enda eg

svo miðann með kærri kveðju

Virðingafyllst

Eiríkur Briem.








  • Skráð af: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: Júlí 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar