Bréf (SG02-239)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 18. júlí 2013 kl. 15:49 eftir Edda (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2013 kl. 15:49 eftir Edda (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG:02:239 Bréf frá Jóni Sigurðssyni og fleirum * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 7. apríl 1874 * '''Bréfritari''': Jón Sigurðsson * '''Staðsetn...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG:02:239 Bréf frá Jóni Sigurðssyni og fleirum
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 7. apríl 1874
  • Bréfritari: Jón Sigurðsson
  • Staðsetning höfundar:
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda: Reykjavík

  • Lykilorð:
  • Efni: Safn Sigurðar Guðmundssonar Aðfangabók Þjóðminjasafnsins bls. 74: „Bréf frá Jóni Sigurðssyni, Birni Halldórssyni, Einari Ásmundssyni og E. Gunnarssyni (Eggert?). Dagsett 7.4.1874 að Hálsi. Boðsbréf um Þjóðhátíð á Þingvöllum.”
  • Nöfn tilgreind:

Þúsund ára afmæli þjóðarinnar

  • Texti:

bls. 1


Það vakir an efa fyrir öllum beztu mönnum þjóðar
vorrar að vjér Islendingar þurfum á komandi sumri
að minnast þúsund ára afmælis þjóðarinnar á sóma sam-
legan hátt, því fyrst er þetta í sjálfu sjer tilhlýðilegt.
og í annan stað munu eptir komendur vorir lengi telja
það sem, vissastan vott um þjóðernis tilfinning vora
sem nú erum uppi, hvernig vjer minn umst þessara alda
móta, sem eru svo merkileg í sögu landsvor, og hvernig
vjer höldum hátíð í minn ingu þess, að íslenzka þjóðin
er orðin 1000 ára gömul, þar sem engin önnur þjóð í heimi,
hefur nokkru sinni gjetað haldið slíka hátíð, af því hún
hafði eigi eins sannar og ljósar sögur um uppruna sinn
eíns og vjer.-
En þó allir góðir landar vorir finni til þessa, og þó menn
hafi rótt töluvert um málið á fyrir farandi árum, þá eru
menn þó enn mjög óviðbúnir, og hafa hverki komið sjer
saman um það; hvenærhvarhvernig þjóð hátíðina
skuli halda. – Það segi sig þó sjálft, að engin mýnd gjetur
orðið á þessu hátíðar haldi voru, ef vjer verðum eigi sam-
taka um það, að halda hátíðina sama dag um allt land
og með svo almennum og fjölmennum samkomum sem
verða má. – Nú með því komið er í eindaga að
taka síg saman um þessi efni, þá hefur mörgum mönnum
hjer norðan lands virzt að svo búið mætti eigi lengur standa
Menn hafa því átt með sjer almenna hjeraðsfundi til
að ræða um mál þetta, og hafa þar komist að þeirri
niður stöðu;
1. Að bezt væri tilfallið, fyrir margra henta samir, að
halda þjóðhátiðina í á fimtudaginn 11. viku sumars, 2 daga næst kom-
andi Júlí mánaðar, miðdag ársíns, þann dag er um
margar aldri var sam komu dagur þjóð þínga Íslendinga
2. Að aðalsamkoma til hátíðar haldsins væri á hinum
forna og fræga allsherjar samkomustað þjóðarinnar
Þíngvöllum, og að þangað sækti svo margir aföllu
landinu, sem kost eiga á; en að í sama mund væri og haldnar hátíðar samkomur í
hverju hjeraði

bls. 2


eða sveit, stærri eður minni eptir því, sem í hverjum staðhagar
til.
3. Að á hátíðinni væri á hverri samkomu sungnir sögnvar og
fluttar ræður er ættu við þetta hátíðlega tækifæri, fundar-
staðirnir prýddir, svo sem föng eru á, og menn skemta sjer
á sóma samlegan hátt, eptir því sem efni og ástæður leyfa.
Ennfremur að menn, annaðhvort hinn sama dag, eða næsta
dag á eptir, stofnuðu til nýtsamlegra og fagurra
fyrir tækja, er gjætu orðið landí og lýð til gagns
og sóma. –
Á hjeraðsfundum þeím er vjer áður gátum um að haldnir hefðu
verið, til að ráða eitthvað af í þessu máli, vorum vjer, sem
hjer ritum nöfn voru undir, kosnir til þess að leita þess
við hína beztu menn víðsvegar á landinu, að þeir ýrðu oss samtaka
í þessum greinum, og því viljum vjer nú skora á yður,
að þjér gjörið allt það er í yðar valdi stendur, til þess, að hjeraðs
búarnir verði oss samtaka í þessu efni, svo þjóðhátíð
vor verðí haldinn sóma samlega, og sama dag um allt land.
Hálsi, 7. dag aprílm. 1874
Jón Sigurðsson Björn Halldórsson
Einar Ásmundsson. E. Gunnarsson.



S.T.
Herra Málari Sigurður Guðmundsson


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: Júlí 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar